Framkvæmdum við kvennaklefann í Sundhöll Reykjavíkur er lokið og var hann opnaður aftur í dag eftir miklar endurbætur. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu á vef Reykjavíkurborgar.
Kvennaklefinn hefur verið lokaður vegna framkvæmda síðan laugin opnaði eftir viðhaldslokun í sumar. Konur hafa notað útiklefa karla og kvenna síðan þá. Þá hefur karlaklefinn verið lokaður síðan í desember á síðasta ári og hafa karlar notað gamla kvennaklefann í upprunalegu byggingunni síðan þá.
Konur komast því aftur inn í hlýjuna nú þegar er byrjað að kólna verulega og karlar fá útiklefann sinn til baka.
Starfseminn færist afur í hefðbundið horf
Framkvæmdir við karlaklefann standa enn yfir og er stefnt að opnun hans snemma á nýju ári. Framkvæmdir við búningsklefa kvenna og karla í Sundhöll Reykjavíkur hafa staðið yfir frá því í sumar og reynst umfangsmeiri en upphaflega var gert ráð fyrir.
Talsvert rask hefur verið á starfsemi Sundhallarinnar vegna framkvæmdanna. Opnunartími hefur verið skertur frá því að skólasund hófst í ágúst og takmarkanir í gildi um fjölda gesta í lauginni. Opnunartímar verða nú aftur samir og fjöldatakmarkanir felldar niður.
