Líkur á flughálku í fyrramálið

Lægðardrag á Grænlandshafi þokast nær landinu með snjókomu vestantil í fyrramálið, en einnig í öðrum landshlutum. „Jafnframt hlýnar hægt og bítandi og snjókoman fer því yfir í rigningu eða slyddu á láglendi vestantil síðdegis,“ að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Veðurfræðingur Vegagerðarinnar bendir á að líkur eru á flughálku um suðvestanvert landið í fyrramálið, einkum í uppsveitum sunnan- og vestanlands, en einnig á stöku stað á Reykjanesi og á höfuðborgarsvæðinu.

Vindur verður það hægur að hann nær sums staðar ekki að ryðja kalda loftinu frá, en úrkoman heldur áfram og því gæti komið frostregn síðdegis.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.