Lítill snjór á Öxi og íbúar telja veginn lokaðan óþarflega lengi

Vegurinn um Öxi var merktur ófær alla helgina en íbúar á Djúpavogi fullyrða að lítið hefði þurft til að opna hann. Þeir vilja að vegurinn sé opnaður um leið og óveðri slotar og segja að það kosti oft lítið.

„Þær upplýsingar sem við fengum um helgina voru að það væri ein brekka með smá snjó í sem væri jeppafær en að öðru leyti væri Öxi auð. Þannig að þetta hljómar eins og lítil fyrirstaða,“ segir Kristján Ingimarsson, íbúi á Djúpavogi.

Vegurinn um Öxi styttir hringveginn og leiðina á milli Djúpavogs og Egilsstaða um tæpa 70 kílómetra. Eftir 1. nóvember er vegurinn þó aðeins opnaður einn dag í viku. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni var veður vont á Öxi fram eftir laugardegi. Á sunnudögum sé ekki alltaf farið í að skoða og taka ákvörðun um hvort opna skuli vegi sem eru á svokallaðri G-reglu. Nú sé verið að skoða hvort það borgi sig að opna.

Mokstur einn dag í viku sé allt of lítið

Íbúar á Djúpavogi berjast fyrir heilsársvegi um Öxi og í millitíðinni fleiri mokstursdögum.

„Fólk var mikið á ferðinni núna um helgina og í gær og þetta skiptir okkur gríðarlega miklu máli og það er mjög sorglegt ef það er einhver 50 eða 100 metra kafli sem þarf að skafa aðeins af sem veldur öllum þessum vandræðum. Við viljum að Öxi sé haldið opinni meira en einn dag í viku. Það er bara allt of lítið. Hún verði bara opnuð um leið og veðri slotar að því gefnu að veðurspáin sé þokkaleg. Það er mjög oft sem er mjög lítil fyrirstaða og væri hægt að hreinsa þetta af bara með tönn framan á pikkupp eða með dráttarvél. Það þarf ekki að kosta til stórum aðgerðum. Það væri hægt að opna miklu oftar,“ segir Kristján Ingimarsson, íbúi á Djúpavogi.