Mátti ekki vísa albönskum morðingja úr landi

Úrskurðarnefnd kærunefndar útlendingamála felldi úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar um að vísa albönskum manni brott og setja hann í 12 ára endurkomubann til Íslands. Þetta kemur fram í úrskurði frá 15. október.

Maðurinn sótti um dvalarleyfi sem maki íslenskrar konu árið 2023 og á með henni barn.

Árið 2007 var maðurinn dæmdur í fangelsi í Albaníu fyrir að hafa skotið mann til bana árið 2004 í samverknaði við aðra. Hann var dæmdur í 18 ára fangelsi, þar af voru 16 ár fyrir manndráp en 3 fyrir vopnalagabrot. Einn þriðji hluti refsingarinnar var felldur niður og maðurinn sat inni í 12 ár.

Lögregla taldi samfélaginu stafa ógn af manninum

Á Íslandi var maðurinn sakborningur í fjórum málum og grunaður um sjö brot í heildina árin 2018–2025. Hann var meðal annars grunaður um brot á lögum um atvinnuréttindi útlendinga, brot gegn endurkomubanni og akstur án ökuréttinda. Þá hafði mál verið til rannsóknar sem sneri að kynferðisbroti gegn barni undir 15 ára.

Mat lögregla í ljósi dómsins yfir manninum að ógn gagnvart almannahagsmunum samfélagsins væri raunveruleg, yfirvofandi og nægilega alvarleg til að vísa honum úr landi.

Kærunefnd útlendingamála féllst þó ekki á að dómurinn frá 2007, eða flest brotin sem maðurinn var grunaður um, leiddu til þess að nauðsynlegt væri að brottvísa honum vegna öryggis ríkisins eða almannahagsmuna.

„Áréttað er að umsögn lögreglu í málinu er dagsett 5. júní 2025 og tekur t.a.m. ekki mið af kynferðisbrotamáli kæranda sem er til meðferðar hjá héraðssaksóknara. Mat lögreglu tekur því ekki mið af málsatvikum í heild sinni og er ábótavant af þeim sökum,“ segir í úrskurðinum.

Hefði þurft ítarlegri gögn

Maðurinn er sakborningur í rannsókn á kynferðisbroti gegn barni undir 15 ára aldri. Það er til meðferðar hjá héraðssaksóknara.

Brotið er, að mati úrskurðarnefndar, alvarlegs eðlis og kynni að varða grundvallarhagsmuni samfélagsins. Nefndin telur þó að líta verði til þess að málið sé á rannsóknarstigi. Mjög takmörkuð gögn liggja fyrir um skýrslutöku vegna málsins auk þess sem hvorki ákæra né dómsúrlausn liggja fyrir.

„Er nauðsynlegt að afla frekari og ítarlegri gagna um mál kæranda áður en unnt er að taka afstöðu til þess hvort háttsemi hans hér á landi geti talist ógn við almannahagsmuni.“