Microsoft-bilun kenni fólki að reiða sig ekki um of á einn birgja

Þjónusta Microsoft virðist víða komin í samt lag en fyrirtækið segist enn vinna að því að rannsaka rót vandans. Milljónir manna höfðu ekki aðgang að tölvupóstinum sínum í nærri hálfan sólarhring.

Bjarki Þór Sigvarðsson, fagstjóri hjá netöryggissveit CERT-IS, segir Microsoft enn ekki hafa gefið út hvað olli biluninni, annað en að netþjónar hafi hætt að virka.

Gervigreindin öflug við að finna veikleika í kerfum

Spurður hvort bilunin sé mögulega sú stærsta í sögunni segir Bjarki hana vissulega mjög umfangsmikla, í ljósi þess hve mörg fyrirtæki og stofnanir reiði sig á kerfi Microsoft.

„Það sem þetta og sams konar atvik hjá tæknirisum kenna okkur, eins og Cloud Flare-atvikið í febrúar á þessu ári, er að við ættum ekki að reiða okkur um of á einn birgja og ættum að gera ráðstafanir og viðbragðsáætlanir svo að starfsemin strandi ekki.“

En er það tilviljun að svona margar tæknibilanir eigi sér stað með svona stuttu millibili?

„Í víða samhenginu út frá netöryggisvinklinum og okkar starfsemi þá hefur gervigreindin náttúrulega orðið sífellt öflugri, meðal annars í að finna veikleika í kerfum. Það er eitt af því sem hún er orðin lunkin í. Við höfum séð mikið af veikleikum og misnotkun á veikleikum, það er mikil aukning á því á þessu ári.“