Grjót hrundi úr Holtsnúpi undir Eyjafjöllum og yfir þjóðveginn í morgun. Nýuppsettar hrunvarnir gripu mestan hluta þess en stór hnullungur rauf þær og þveraði veginn.
Einar Viðar Viðarsson, verktaki og íbúi á Ásólfsskála, gerir ráð fyrir að bjargið hafi verið um 10 tonn. „Og endaði 15-20 metrum sunnan við veginn,“ segir hann.
Einar kom að staðnum nokkrum mínútum eftir grjóthrunið. Hann segir að fyrsti bíllinn á staðinn eftir atburðinn hafi verið rúta með á bilinu 40 til 50 manns innanborðs.
„Ef rútan hefði verið einhverjum tugum sekúndna á undan en hún var hefðu sirka tíu getað verið dánir. Þetta er 10 tonna bjarg sem fer.“
Hann segir bílstjóra rútunnar hafa verið nokkuð skekinn.
Kona lést þegar grjót hrundi á bíl sem hún ók á þjóðveginum við Holtsnúp í Steinafjalli í mars 2025. Í sumar var varnargörðum komið fyrir á 300 metra kafla við þjóðveginn. Íbúar hafa kallað eftir því að vegurinn verði færður lengra frá fjallinu.
„Þetta stoppar ekki þau björg sem geta komið úr fjallinu og þetta verndar ekki neinn fyrr en vegurinn er færður frá hlíðinni,“ segir Einar.
Grjóthrunið varð rétt upp úr klukkan 11 í morgun. Einar segir að umferðin um veginn sé mjög þung upp úr klukkan 10 þar sem fjöldi ferðamanna keyri austur frá Reykjavík.
Hann bendir enn fremur á að lokist vegurinn vegna grjóthruns sé engin hjáleið til staðar fyrir viðbragðsaðila. „Þetta varðar líf,“ segir hann.
Stærri steinn en olli banaslysinu
„Vegagerðin lítur atvikið alvarlegum augum og er að skoða skemmdirnar. Gatið í veggnum verður lokað til bráðabirgða og í framhaldi verður metið hvað þarf að gera til að tryggja öryggi vegfarenda,“ segir í tilkynningu á vef Vegagerðarinnar um grjóthrunið í morgun.
Við hönnun varnanna var miðað við steina á bilinu 3–4 tonn.
„Áætlað er að steinninn sé um tíu tonn að þyngd og því mun stærri en algengast er að hrynji úr fjallinu. […] Steinninn er jafnframt mun stærri en sá sem olli banaslysi á þessum stað í mars 2025.“
