Nemendur í Hagaskóla sáu tvo starfsmenn skólans kyssast í gegnum sandblásið gler á þriðjudag. Fólkið taldi sig vera í einrúmi.
Skólastjóri Hagaskóla sendi tilkynningu til foreldra eftir að fjölmiðlar fóru að spyrjast fyrir um málið. Hagaskóli er gagnfræðaskóli í Vesturbæ Reykjavíkur. Þar stunda nemendur í 8.–10. bekk nám.
„Skólastjórnendur hafa rætt við hlutaðeigandi og málið er til skoðunar í samráði við mannauðsskrifstofu skóla- og frístundasviðs,“ segir í tilkynningu sem Sigríður Nanna Heimisdóttir skólastjóri skrifar undir.
Þá segir að starfsfólk hafi verið sýnilegt á göngum skólans svo nemendur gætu leitað til þess hefðu þeir spurningar eða vildu ræða málið.
„Mér finnst þetta dómgreindarbrestur“
„Auðvitað er maður leiður að eitthvað svona gerist – dapur,“ segir Sigríður Nanna við fréttastofu. Atvikið varð í skrifstofurými en ekki í kennslustofu.
Hún segir málið til skoðunar og að skólastjórnendur séu að reyna að afla upplýsinga um það. „Þetta fer í ákveðið ferli sem við reynum að vinna eftir.“
Spurð hvort þetta sé brot á reglum skólans segist Sigríður Nanna telja það. Hún segir að sér þyki ekki eðlilegt að starfsfólk kyssist á vinnutíma. „Mér finnst þetta dómgreindarbrestur,“ segir hún.
