Nokkrir skólar í Reykjavíkurborg eru þegar byrjaðir að vinna samkvæmt verkefninu Einn inngangur, sem felur í sér að allar dyr skóla eru læstar nema ein á kennslutíma. Foreldrar barna í Fossvogsskóla voru í dag látnir vita að byrjað væri að vinna samkvæmt verkefninu.
„Við tökum þátt í því verkefni og munum loka öllum inngöngum á meðan skólastarf stendur yfir á opnunartíma skóla,“ segir í tölvupóstinum.
„Aðalinngangur skólans er þó alltaf opinn og geta foreldrar komið þar inn á skólatíma en verða að gera vart við sig á skrifstofunni í Bjartalandi.“
Verkefnið er til vinnslu innan Reykjavíkurborgar og segir Eyþór Víðisson, öryggisstjóri vinnuverndar hjá Reykjavíkurborg, að það snúist um það að stýra betur aðgengi að grunnskólum Reykjavíkurborgar. Hann vill þó ekki nefna hvaða skólar séu byrjaðir.
„Hugmyndin er að þegar kennsla hefst þá verði aðgengi bara lokað á öllum hurðum nema einni,“ segir Eyþór sem tekur fram að eftirspurn sé hjá fleiri skólum að taka þátt.
Einn inngangur felur í sér að þegar kennsla fer fram í skólum verði allir inngangar hans læstir. Hægt verði að komast inn um einn inngang með því að hringja í dyrasíma með myndavél og gera grein fyrir sér og tilgangi heimsóknarinnar.
Lýstu yfir áhyggjum af fjölgun öryggisatvika
Verkefnið var kynnt á fundi skóla- og frístundaráðs 12. október þar sem öryggisstefna og verklag skóla- og frístundasviðs voru einnig til umræðu.
Þar lagði ráðið fram bókun um að það hefði áhyggjur af því að vísbendingar um öryggisatvik gagnvart starfsfólki væru í sumum tilvikum að verða fleiri og alvarlegri. Mikilvægt væri að mæta þeirri þróun með markvissum forvörnum og stuðningi við starfsfólk.
Jafnframt þyrfti að huga vel að aðgangsstýringu í því húsnæði þar sem börn dvelja og tryggja að öryggi þeirra sé ávallt haft að leiðarljósi.
Verkefnið var einnig rætt á fundi borgarstjórnar 20. október. Borgarfulltrúar Miðflokksins mótmæltu þar því að skólar borgarinnar væru að þróast í átt að lokuðum öryggissvæðum. Þeir lýstu þó þungum áhyggjum af þeim upplýsingum að öryggisatvik gegn starfsfólki væru að verða fleiri og alvarlegri og að kennarar upplifðu sig óörugga í starfi.
Misflókið fyrir skóla að taka upp verklagið
Eyþór segir að til skoðunar sé að taka verkefnið einnig upp í félagsmiðstöðvum og frístund. Þá sé einnig til umræðu að taka verkefnið upp í leikskólum en annað verklag yrði í þeim.
„Það er allavega að byrja á grunnskólunum til að stýra aðgengi fullorðinna að skólabyggingunum á skólatíma,“ segir hann.
Búið er að stofna vinnuhóp í kringum verkefnið sem hefur það verkefni að kortleggja þarfir hvers skóla og hvar er hægt að byrja strax. Að sögn Eyþórs er misauðvelt fyrir skóla að taka þátt eftir því hvernig þeir eru byggðir.
„Skólabyggingar í Reykjavík eru mjög misjafnar, þær eru 39 talsins, fyrir utan aukabyggingar, svo eru útikennslustofur, leikfimishús og fleira,“ segir Eyþór.
Minnka óþarfa umferð fullorðinna
Eyþór nefnir sem dæmi að þegar eitthvað eins og sundpoki hafi gleymst þurfi foreldri að mæta að inngangi og dingla bjöllunni. Þeim verði þá vísað á stað þar sem þeir geta skilið pokann eftir.
„Svo að við minnkum þá óþarfa umferð fullorðinna um skólabyggingarnar á kennslutímum,“ segir Eyþór.
Eyþór segir ekkert eitt atvik hafa verið kveikjuna að verkefninu. Hins vegar hafi atvik í skólum undanfarið orðið til þess að styrkja hugmyndafræði verkefnisins. Sjálfur hafi hann heyrt af álagi á starfsfólk skóla áður en verkefnið varð til.
„Hluti af þessu álagi er meðal annars samskipti við foreldra sem geta verið erfið eða flókin, umgangur um skólabyggingarnar, einhvers konar gangavarsla og þessi ábyrgð sem starfsfólk skóla finnur fyrir ef eitthvað kemur upp á. Þá veit skólastjórnandinn kannski ekki hverjir eru í byggingunni,“ segir Eyþór sem hefur unnið að þróun hugmyndarinnar frá 2023.
Opnir skólar mögulega tímaskekkja
Íslenskir skólar hafa að mati Eyþórs verið mjög opnir í gegnum tíðina og hafa bæði foreldrar og starfsmenn verið hvattir til mikilla samskipta.
„Við ætlum ekkert að minnka það, við ætlum bara að stýra þessu betur og einbeita okkur meira að kennslunni,“ segir Eyþór sem segir að horft hafi verið til fyrirmynda í skólum erlendis. Þá sé fyrirkomulagið þegar við líði hjá mörgum fyrirtækjum þar sem fólk fær aðgang að afgreiðslu og þarf að gera grein fyrir erindi sínu.
„Það er kannski svolítil tímaskekkja að vera með þessa stóru vinnustaði galopna í alla enda, kannski ellefu eða þrettán inngangar þar sem allir geta komið inn,“ segir Eyþór sem telur að nokkur tími, jafnvel ár, sé í að allir skólar í borginni hafi tekið upp verklagið.
