Forstýra Kvennaathvarfsins óttast að nýtt framfærsluviðmið dómsmálaráðuneytisins fyrir umsækjendur dvalarleyfis og ríkisborgararétts geti orðið til þess að konur geti ekki losnað úr ofbeldissamböndum. Viðmiðið gæti hækkað um meira en 200%.
Til þess að fá dvalarleyfi eða íslenskan ríkisborgararétt þurfa umsækjendur að sýna fram á trygga framfærslu. Dómsmálaráðuneytið vill hækka þá fjárhæð sem viðkomandi þarf að hafa í tekjur.
Hækkunin er mest fyrir einstæða foreldra með tvö börn, eða 208%, úr um það bil 260 þúsund krónum á mánuði í ríflega 800 þúsund, fyrir skatt.
„Við getum bara ekki séð að ein einasta kona sem hefur komið inn til okkar af erlendum uppruna geti staðist þessi viðmið og fái þar af leiðandi dvalarleyfi,“ segir Linda Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins. Oft séu þetta erlendar konur sem hafi flutt hingað og séu í sambandi við íslenska menn.
Linda segir að það sé þekkt stjórnunartæki að banna konum að vera á vinnumarkaði og stýra fjármálum þeirra. „Þeim er oft bannað að vinna á meðan á ofbeldissambandi stendur, þannig að þegar þær stíga út úr ofbeldinu þá hafa þær engar tekjur til að sýna fram á,“ segir Linda.
75% þeirra kvenna sem dvelja í Kvennaathvarfinu eru af erlendum uppruna. Ofbeldismaðurinn getur verið ýmist íslenskur eða erlendur.
„Það að skilja og stíga út úr sambandi þýðir að þá þarftu að sýna fram á hærri tekjur heldur en ef þú værir gift maka þínum. Þannig að í rauninni er allt sem ýtir því að þolandanum að halda sig inni í sambandinu áfram.“
Þetta geti orðið til þess að konur festist í ofbeldissamböndum. „Þannig að þær ná ekki að stíga út úr ofbeldinu því þá er hægt að nota þetta gegn þeim.“

Leave a Comment