Lögreglan á Norðurlandi eystra greinir frá því í Facebook-færslu að uppsjávarskip Samherja, Vilhelm Þorsteinsson EA-11, hafi losnað frá bryggju við höfnina á Krossanesi á Akureyri í veðurofsanum. Tilkynningin barst lögreglunni um hálf tíuleytið í gærkvöldi.
Bryggjupollarnir á bryggjunni höfðu þá brotnað undan álagi og þegar viðbragðsaðilar komu á staðinn var skipið komið nokkru frá bryggjunni og hékk aðeins á einni taug.
Mikið rót var á sjónum við höfnina og ekki að því hlaupið að koma áhöfn um borð til að taka stjórn á skipinu. Lóðsinn var ræstur út og tókst að koma mönnum í skipið sem gátu ræst vélarnar.
Með aðstoð lóðsins var skipinu komið frá höfninni og því siglt að Oddeyrarbryggju. Ekki er talið að skipið sé tjónað en tjón á hafnarmannvirkjum í Krossanesi verður kannað betur í fyrramálið.
Foktjón á Ólafsfirði og Dalvík
Fleiri verkefni komu á borð lögreglunnar vegna veðursins og þótt þau hafi ekki verið jafn krefjandi og að beisla stóreflis skip höfðu björgunarsveitir í nógu að snúast.
Bregðast þurfti við þegar þak fór að fjúka af húsi á Ólafsfirði og þá brotnaði rúða í húsi í sama bæ. Björgunarsveitir á Ólafsfirði og Siglufirði sinntu þeim verkefnum. Þá þurfti björgunarsveitin á Dalvík að sinna útkalli vegna foktjóns.
