Prófanir á rýmingarflautum í Grindavík og Svartsengi

Á morgun, miðvikudaginn 25. nóvember, verða prófanir á rýmingarflautum í Grindavík og í Svartsengi klukkan 11:00.

Lögreglan á Suðurnesjum segir í færslu á Facebook að prófanirnar séu reglubundnar til að tryggja virkni búnaðar. Flauturnar munu hljóma tvisvar sinnum, fyrst með fjarræsingu og síðan með handræsingu.

Áréttað er að þetta er eingöngu prófun og engar aðgerðir nauðsynlegar.Færsla lögreglunnar á Suðurnesjum á facebook.Facebook / Lögreglan á Suðurnesjum


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.