Starfsmenn Veitna eru búnir að koma á rafmagni alls staðar þar sem varð rafmagnslaust í Múlunum og nágrenni í morgun.
Spennubilun olli því að rafmagn fór af Ármúla, Síðumúla, Hallarmúla, Háaleitisbraut, Suðurlandsbraut og nágrenni. Rafmagni var komið aftur á hluta svæðisins upp úr klukkan níu og restina upp úr tíu.
Lögregla þurfti að stýra umferð um gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar um skeið.
