Reikningurinn fyrir hallalaus fjárlög hafi farið beint á heimilin

Lilja Alfreðsdóttir formaður Framsóknarflokksins segir ríkisstjórnina hafa brugðist í efnahagsmálum. Hún fór yfir stöðu mála í ræðu sinni á miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins sem fram fór á Laugarbakka í dag.

„Tvö ár eru liðin af kjörtímabilinu og verðbólgan er hærri en þegar ríkisstjórnin tók við. Við höfum glatað tveimur mikilvægum árum. Ríkisstjórnin skilar ekki bara auðu í efnahagsmálum, hún er beinlínis skaðleg,“ sagði Lilja sem benti á að verðbólga hefði mælst 5,9% í október og að stýrivextir væru enn háir en þeir eru 8%.

„Það er ekki nóg að segjast vera með sleggju, henda í óteljandi sjálfur og halda að þetta gerist af sjálfu sér“ sagði Lilja, sem taldi ríkisstjórnina hafa lagt mikla áherslu á hallalaus fjárlög án þess að minnast á hver greiddi fyrir það markmið.

„Það er grundvallarmunur á því að ná jafnvægi með skynsamlegri forgangsröðun og því að senda reikninginn einfaldlega áfram til heimilanna,“ sagði Lilja.

„Daði, það er bannað að plata!“

Lilja var einnig gagnrýnin á vinnubrögð ríkisstjórnarinnar í málefnum Landsvirkjunar eftir að Hörður Árnason sagði starfi sínu lausu eftir 17 ár sem forstjóri.

Sjálfur lýsti Hörður starfslokum sínum þannig að hann hefði óttast að pólitísk afskipti myndu gera fyrirtækið óstarfhæft. Þá hafa háværar deilur farið fram á Alþingi vegna ásakana á hendur Daða Má Kristóferssyni, fjármála- og efnahagsráðherra, um að hafa sagt ósatt um samskipti sín við stjórn Landsvirkjunar og Hörð.

„Ég vil segja við ykkur Framsóknarfólk: Landsvirkjun er í eigu þjóðarinnar og Landsvirkjun skal áfram vera í eigu þjóðarinnar. Ég vil segja við ríkisstjórnina: „Látið Landsvirkjun í friði. Og við fjármálaráðherra vil ég segja: Daði, það er bannað að plata!“ sagði Lilja.

Flokkurinn mældist með 6% fylgi í síðasta þjóðarpúlsi Gallup sem birtur var í vikunni.

„Ég veit og skil að við viljum sjá hærri tölur í skoðanakönnunum. Það vil ég líka. En sígandi lukka er best,“ sagði Lilja í ræðu sinni og minnti á að flokkurinn hefði áður mælst lágt í skoðanakönnunum en komið sterkur til baka.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.