Sæmi Rokk Pálsson, áður Sæmundur Pálsson, fyrrverandi lögregluþjónn, lífvörður, leikari og dansari, er látinn. Hann var 91 árs gamall.
Sæmi breytti nafni sínu árið 2018 úr Sæmundur Pálsson í Sæmi Rokk. Hann vakti mikla athygli á unglingsárum sem rokkdansari og hlaut þá viðurnefnið sem hann varð þekktur fyrir.
Hann átti síðar eftirminnilega innkomu í kvikmyndinni Með allt á hreinu frá 1982 þegar hann lék persónuna Óliver Tvist þar sem hann sagðist tvista til að gleyma.
Víðfræg vinátta við Bobby Fischer
Margir muna vel eftir vináttu hans og skákmeistarans Bobby Fischer en Sæmi starfaði um tíma sem lífvörður Fischer. Þeir kynntust í Reykjavík árið 1972 þegar Fischer háði þar skákeinvígi við hinn rússneska Boris Spassky.
Sæmi aðstoðaði síðar Fischer við að flytja til Íslands árið eftir að Fischer hafði setið í fangelsi í Japan í tíu mánuði. Honum var veitt íslenskt ríkisfang af mannúðarástæðum 22. mars 2005 en lést svo þremur árum seinna.
Friðrik Guðmundsson gerði síðar meir heimildarmyndina Me and Bobby Fischer um samband Sæma og Fischer og þann tíma þegar hann barðist fyrir því að fá vin sinn hingað til lands.
Sæmi eignaðist fjögur börn með fyrrverandi eiginkonu sinni Ásgerði Ásgeirsdóttur. Hann lætur eftir sig tólf barnabörn og enn fleiri barnabarnabörn.
