Komur og tekjur af skemmtiferðaskipum hafi dregist saman í ár samkvæmt samantekt fyrirtækisins Cruise Iceland.
Í tilkynningu undirritaðri af Sigurði Jökli Ólafssyni, framkvæmdastjóra Cruise Iceland, segir að tekjur hafna vegna komu skemmtiferðaskipa séu um 450 milljónum lægri en árið 2025. Það sé um 10% lækkun milli ára þrátt fyrir að Ísland hafi notið mikilla vinsælda sem áfangastaður í ár einkum vegna sólmyrkvans í ágúst.
„Tekjutap sem má rekja til afleiðinga af fyrirvaralausri álagningu of þungs innviðagjalds og óstöðugleika í rekstrarumhverfi hringsiglinga leiðangursskipa á árunum 2023 til 2025.“
Gera megir áð fyrir enn meiri samdrætti á komandi ára. Þá hafi hafnarkomum fækkað um 146 á árinu eða um 12%. Heildarfjöldi farþega skemmtiferðaskipa hafi lækkað um tæp 30 þúsund. Dagsferðalöngum hafi fækkað um 140 þúsund.
Hvað er dagsferðalangur?
Dagsferðalangur er farþegi sem siglir með skipi til margra hafna og áfangastaða og er talinn við hverja hafnarkomu, þar sem hann verður þá væntanlegur viðskiptavinur á sérhverjum nýjum áfangastað.
Fyrirtækið segir fækkun í skipakomum koma harðast niður á smærri höfnum eins og á Borgarfirði eystri, Húsavík, Djúpavogi og Siglufirði. Í sumum tilvikum hafi skipakomum fækkað um allt að 65%. Engin skemmtiferðaskip hafi komið í Bolungarvík og Þórshöfn á Langanesi á árinu.
