Jóhann Möller, stjórnarmaður í Arion banka, segir að Landsbankinn geti greitt mun meiri arð í ríkissjóð ár hvert en hann gerir nú. Þannig gæti ríkið aflað 11 til 15 milljarða króna aukalega án þess að greiða skatta.
Þetta segir Jóhann í aðsendri grein á Vísi. Hann vísar til þess að arðgreiðslustefna bankans geri ráð fyrir að reglulegar arðgreiðslur séu helmingur af hagnaði fyrra árs.
„Ef hins vegar eigandinn festi í sessi, í gegnum uppfærða eigendastefnu, hærra viðmið þannig að reglulegar arðgreiðslur sem nema 80–90% af hagnaði yrðu greiddar, gæti ríkissjóður fengið aukalega 11 til 15 milljarða króna – á ári hverju. Það er til að mynda meira en hækkun kílómetragjalds og bankaskatts á að skila samanlagt á næsta ári.“
Jóhann segir að eigið fé Landsbankans hafi aukist um 84 milljarða frá 2020 á sama tíma og eigið fé Arion banka hafi aukist um 18 milljarða og eigið fé Íslandsbanka um 30 milljarða.
Hann segir að sérstakar tilfallandi arðgreiðslur sem ríkið hafi fengið séu tilfallandi, ógagnsæjar og háðar ákvörðun bankaráðs hverju sinni. Því eigi ríkissjóður erfitt með að byggja fjárlög á þeim.
„Rétt er að taka fram að ég starfa hjá Arion banka og hef starfað á fjármálamarkaði í 25 ár. Ég hef því velt þessum málum nokkuð lengi fyrir mér, bæði sem starfsmaður fjármálafyrirtækis og sem skattgreiðandi.“
