Segist hafa viljað staðfesta að Vilhjálmur og Ólafur væru „leppar“ Róberts Wessman

Björgólfur Thor Björgólfsson kaupsýslumaður og Birgir Már Ragnarsson fjárfestir mótmæla öllum kröfum, málsástæðum og lýsingum Vilhjálms Bjarnasonar, fyrrverandi alþingismanns, á málsatvikum í tengslum við PPP-málið svokallaða.

Mál Vilhjálms gegn Björgólfi og Birgi var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Vilhjálmur stefndi þeim fyrir njósnir, brot gegn rétti til einkalífs, umsáturseinelti og brot á persónuvernd. Hann krefst miskabóta og segir friði sínum, öryggi og velferð hafa verið raskað. Ólafur Kristinsson hefur einnig stefnt þeim.

Björgólfur og Birgir segjast hafa ráðið PPP til að afla upplýsinga um Vilhjálm og fylgjast með honum á opinberum vettvangi um tiltölulega stutta stund. Þeir segjast ekki hafa óskað eftir eða rætt um myndbandsupptökur eða samfellda myndavélavöktun. Raunar hafi ekkert verið rætt um búnað eða aðferðir PPP.

„Athugun“ PPP hafi einungis átt að tengja Vilhjálm og Ólaf Kristinsson lögmann við Róbert Wessman, stofnanda Alvotech. PPP hafi átt að afla upplýsinga um þátttöku hans, að undirlagi Róberts, í stuldi trúnaðargagna og rógsherferð sem á eftir fylgdi gegn Björgólfi og blekkingarleik til söfnunar þátttakenda í hópmál gegn honum.

Vinnan hafi tekið nokkrar vikur og ekkert komið út úr henni.

Fjallað var um málið í Kveik í apríl á síðasta ári. Þar kom fram að Vilhjálmur og Ólafur væru meðal þeirra sem Björgólfur Thor lét eftirlitsfyrirtækið PPP, sem var í eigu fyrrverandi lögreglumannanna Jóns Óttars Ólafssonar og Guðmundar Hauks Gunnarssonar, fylgjast með árið 2012.

Í greinargerð Björgólfs og Birgis í tengslum við málið segir að þeir mótmæli öllum kröfum, málsástæðum og lýsingum Vilhjálms á málsatvikum.

Meðal þeirra vitna sem Björgólfur og Birgir vilja leiða fyrir dóminn eru viðskiptamenn, lögmenn og fleiri.

Hvað vitni vilja Björgólfur og Birgir leiða fyrir dóm?

  • Vilhjálmur Bjarnason – viðskiptafræðingur og fyrrverandi alþingismaður
  • Róbert Wessman fjárfestir og stofnandi Alvotech og Alvogen.
  • Árni Harðarson staðgengill forstjóra og yfirlögfræðingur Alvogen.
  • Þór Kristjánsson var bankaráðsmaður i Landsbanka Íslands og hefur starfað fyrir Róbert Wessman og fyrirtæki undir hans stjórn frá 2010. Áður starfaði hann í Samson eignarhaldsfélagi Björgólfsfeðga.
  • Halldór Kristmannsson viðskiptamaður og fyrrverandi framkvæmdastjóri Alvogen. Hann vann náið með Róberti Wessman og bar hann þungum sökum árið 2021. Hann náði sáttum við Róbert og Alvogen ári síðar. Hann er nefndur sem uppljóstrari um meintan blekkingarleik í greinargerðinni.
  • Jóhannes Bjarni Björnsson lögmaður hjá Landslögum, sem tók að sér að sækja málið gegn Björgólfi fyrir hönd hópmálsóknarfélagsins.
  • Grímur Sigurðsson lögmaður hjá Landslögum, sem áður var skiptastjóri Milestone, sem PPP vann einnig fyrir.
  • Kristjón Kormákur Guðjónsson blaðamaður. Í greinargerðinni segir að hann hafi tekið trúnaðargögn úr Landsbankanum ófrjálsri hendi þegar hann starfaði á Heimildinni.
  • Jón Óttar Ólafsson, fyrrverandi lögreglufulltrúi og eigandi PPP.

Vildu svipta hulunni af stuldi trúnaðargagna og rógsherferð

Björgólfur og Birgir vísa á bug að vinna PPP fyrir þá hafi falið í sér „skipulagða, kerfisbundna og langvarandi njósnastarfsemi“ um Vilhjálm. Hafi hún gengið lengra en þeir óskuðu eftir eða var kunnugt um telji þeir sig ekki bera ábyrgð á því.

Það hafi verið á ábyrgð PPP að eyða öllum gögnum sem tengdust málinu á sínum tíma. Þá mótmæla tvímenningarnir því einnig að Vilhjálmur hafi orðið fyrir tjóni og hvað þá að það hafi verið afleiðing gjörða þeirra.

Í greinargerðinni segir að vinna PPP hafi ekki haft annað að markmiði en að svipta hulunni af tengslum Vilhjálms við Róbert og þátttöku hans í stuldi trúnaðargagna, rógsherferð gegn Björgólfi og blekkingarleik til söfnunar þátttakenda í hópmál gegn honum.

Björgólfur hafi aldrei átt í samskiptum við fulltrúa PPP. Birgir hafi átt milligöngu um það. PPP hafi haft samband við Birgi að fyrra bragði og talið sig hafa upplýsingar um málið.

„Athugunin átti að beinast að því að kanna opinber gögn og að litið yrði til með ferðum stefnanda [Vilhjálms] á opinberum vettvangi um tiltölulega stutta stund til að staðfesta tengsl á milli.“

Ekkert hafi komið út úr því. Það hafi ekki verið fyrr en mörgum árum síðar, árið 2021, sem upplýsingar hafi komið frá Halldóri Kristmannssyni, starfsmanni Róberts til margra ára, sem þeir hafi fengið staðfest hvernig málum var háttað.

„Þá var fyrst unnt að staðfesta þann blekkingarleik sem hafði átt sér stað af hálfu stefnenda Vilhjálms og Ólafs Kristinssonar,“ segir í greinargerðinni.

„Blekkingarleikur“ sem hófst 2008

Í greinargerðinni segir að málið eigi rót sína að rekja til ársins 2008 þegar Björgólfur hafi neyðst til að segja Róberti Wessman upp störfum sem forstjóra Actavis „vegna afleitrar stöðu fyrirtækisins undir hans stjórn“.

Uppsögnin hafi reynst Róberti þungbær og allt frá því hafi hann talið sig eiga sakir að jafna gagnvart Björgólfi. Róbert hafi árið 2010 átt frumkvæði að og stýrt „blekkingarleik“ sem Vilhjálmur og Ólafur hafi sett á svið.

Ólafi er í greinargerðinni lýst sem samverkamanni Vilhjálms og segir að Björgólfur hafi talið þá verið „leppa“ Róberts.

Segir aðild Róberts haldið leyndri

Þá segir að Róbert hafi meðal annars aflað sér trúnaðargagna frá Þór Kristjánssyni með ólögmætum hætti um Landsbanka Íslands sem hafi meðal annars varðað Björgólf. Upplýsingarnar hafi verið notaðar með margvíslegum hætti.

„Til að mynda voru þær notaðar í því sem liðsmenn Róberts í blekkingarleiknum hafa sjálfir nefnt „skæruhernað“. Með því er átt við rógsherferð sem fór fram í fjölmiðlum sem var ætlað að sverta orðspor stefnda Björgólfs,“ segir í greinargerðinni.

Liður í þeim skæruhernaði sem Vilhjálmur og Ólafur hafi átt þátt í samkvæmt greinargerðinni hafi verið ásakanir um að Björgólfur hafi brotið lög sem óbeinn eigandi hlutafjár í Landsbanka Íslands. Þá hafi aðild Róberts að málinu verið haldið leyndri.

„Upplýsingar um hana hefðu enda í andrúmslofti eftirhrunsáranna spillt verulega fyrir tilraunum til að fá hluthafa Landsbankans til þátttöku í hópmálsókninni.“


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.