Segja að námslánin hafi fælingarmátt

Síðustu ár hefur þeim fækkað stöðugt sem sjá námslán sem fýsilegan kost til að framfleyta sér meðan á námi stendur. Einn af hverjum átta háskólastúdentum tekur nú námslán.

Fæstir þeirra stúdenta sem teknir voru tali í Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík taka námslán. Flestir sögðust vinna talsvert mikið með skóla til að komast hjá lántöku.

„Mér finnst það ekki vera góð fjárhagsleg ákvörðun,“ svaraði laganemi í HR spurð um hvers vegna hún tæki ekki námslán.

Getur einbeitt sér 100% að náminu

„Ég sé það sem hagstæða leið til að fá pening meðan maður er í námi, maður getur einbeitt sér 100% að náminu,“ sagði meistaranemi í sjúkraþjálfun í HÍ sem tekur námslán.

Aldrei lægra hlutfall

„Hlutfallið hefur aldrei verið lægra,“ segir Lísa Margrét Gunnarsdóttir forseti Landssamtaka íslenskra stúdenta.

„Og maður veltir fyrir sér: er það vegna þess að þörfin fyrir námslán hefur minnkað. Við höldum ekki. Við höldum að námslánakerfið sé með ákveðinn fælingarmátt.“

Árið 2009 tóku 57% íslenskra háskólanemenda námslán en á síðasta skólaári var þetta hlutfall 12,5%. Og síðustu tíu árin hefur lántakendum fækkað um tvo þriðju – úr 35% árið 2016.

Misjafnar aðstæður hér og annars staðar á Norðurlöndunum

Staða íslenskra háskólanema er nokkuð frábrugðin því sem sést á öðrum Norðurlöndum. Til dæmis bjuggu 24,3% íslenskra háskólanema hjá foreldrum árið 2024, hlutfallið á hinum Norðurlöndunum var þá 4,2 – 16,5%.

Aftur á móti búa færri íslenskir stúdentar í námsmannaíbúðum en gerist og gengur annars staðar á Norðurlöndum.

Met í fjölda vinnandi stúdenta

Hátt í 80% íslenskra háskólastúdenta vinna með námi sem er langhæsta hlutfall í Evrópu.

Í þeim hópi er Rúnar Gauti Gunnarsson, nemandi á 4. ári í fjármálum fyrirtækja í HR og forseti nemendafélagsins þar sem er í um 70% starfi við kennslu, bæði í eigin skóla og víðar.

„Mér finnst í rauninni betri staða að vera skuldlaus, ég ætla að reyna að halda því eins lengi og ég get ef það er ekki húsnæði eða eitthvað annað íþyngjandi. Þá ætla ég að reyna að sleppa við námslán,“ segir Rúnar Gauti.

En hvernig framfleytir háskólastúdent sér sem tekur ekki námslán?

„Það þarf að vinna með þessu, maður þarf að leita allra leiða til að afla tekna og ég er svosem að því með námi og hef alltaf gert. Ef það væri hægt að taka námslán sem væru betri fyrir stúdentinn, kannski minna íþyngjandi eða skuldbindandi, þá væri það auðvitað kostur.“

Misháir vextir eftir gerð lána

Námslánakerfinu var breytt árið 2020. Hægt er að velja á milli verðtryggðra og óverðtryggðra námslána. Þau verðtryggðu bera að hámarki 4% vexti, en þau óverðtryggðu 9%.

Fólk greiðir af þeim mánaðarlega og á að vera búið að því fyrir 65 ára aldur.

Til samanburðar eru algengir vextir verðtryggðra lána banka og lánastofnana 4,4% og óverðtryggðra 8,75%.

Stúdentar vilja vaxtaálagið burt

Þessu til viðbótar er svokallað 0,8% vaxtaálag lagt á námslánin, sem tekur mið af væntum afföllum af endurgreiðslu lánanna og afnám þess er eitt helsta stefnumál stúdenta.

„Það er í rauninni áhættuálag á íslenskum námslánum sem hefur aldrei áður verið,“ segir Lísa Margrét. „Við viljum að námslánakerfið uppfylli lögbundið hlutverk sitt. Að það jafni tækifæri til náms, óháð efnahag. Það er ekki staðan. Og ég held að fólk sjái þetta ekki lengur sem raunverulegan kost til að greiða aðgengi að námi.“