Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi Vestra (SSNV) kallar eftir því að ríkið styðji sveitarfélög til að standa straum af kostnaði við förgun skipa og báta sem daga uppi í höfnum. Ályktun þess efnis var samþykkt á stjórnarfundi SSNV á Blönduósi í síðustu viku.
Í fundargerð stjórnarinnar er bent á að skip séu skilin eftir í höfnum af ýmsum ástæðum, til að mynda vegna gjaldþrots útgerða eða vegna sinnuleysis eiganda.
Þá segir í ályktun stjórnarinnar að skip og bátar sem verða eftir í höfnum geti „skapað öryggis- og umhverfisáhættu, hamlað starfsemi hafna og valdið sveitarfélögum verulegum kostnaði við eftirlit, m.a. til að koma í veg fyrir að þau sökkvi innan hafnar, auk kostnaðar við olíuhreinsun og förgun skipsflaks.“
Stundum óhreyfðir í mörg ár
Nokkur dæmi eru þess á undanförnum árum að bátar hafi sokkið við hafnir þar sem þeir hafa jafnvel staðið óhreyfðir árum saman. Fyrir mánuði sökk til að mynda 80 tonna trébátur, Jökull SK-16, í Hafnarfjarðarhöfn í þriðja skiptið á sex árum.
Báturinn var smíðaður í Þýskalandi árið 1959 og var síðast gerður út á rækjuveiðar frá Sauðárkróki af útgerðinni Gamli og synir. Þegar hann sökk í þriðja skiptið hafði hann verið óhreyfður við bryggjuna í Hafnarfirði síðan árið 2016.
Þá sökk bátur við höfnina á Flateyri fyrir þremur árum. Sá bátur skemmdist í snjóflóðum árið 2020 og hafði legið óhreyfður við landfestar í þrjú ár þegar hann fór á kaf.
Tilviljanakenndur kostnaður
Stjórn SSNV bendir á að það sé tilviljunum háð hvaða hafnir sitji uppi með skip eftir þeirra síðustu siglingu. Stundum séu tengsl skipsins við byggðalagið jafnvel engin. Sveitarfélögin séu hins vegar misvel í stakk búin til að takast á við kostnaðinn sem hlýst af því að sinna skipunum en sum þeirra séu fámenn og hafnarsjóðir þeirra ekki digrir.
Vegna þessa krefst stjórn SSVN þess að stjórnvöld komi á fót úrræði sem gerir sveitarfélögum kleift að sækja um fjárhagslegan stuðning vegna förgunar yfirgefinna skipa. Það sé eina leiðin til að koma í veg fyrir að tilviljanakenndur kostnaður leggist á sveitarfélög vegna þess eins að bátar hafa verið skildir eftir í höfnum þeirra.
Stjórn SSVN segir að fundað verði með Sambandi íslenskra sveitarfélaga til að ræða málið á breiðari grundvelli.
