Dagur íslenskrar tungu er í dag, verðlaun voru veitt og eldri kynslóðir kenndu þeim yngri íslensku.
Í hverri viku hittast börn úr Fossvogi sem eru með íslensku sem annað tungumál og eldri borgarar í félaginu Sléttuúlfunum á Hrafnistu á Sléttuvegi, tala saman á íslensku, lesa, leika sér og spila.
Tilgangurinn er fyrst og fremst að efla íslenskukunnáttu barnanna – en líka að hafa gaman.
„Ég er að læra íslensku með bestu ömmu minni og ég er að lesa íslenska bók,“ segir Karolina Kaspar sem var mætt til að lesa með Guðrúnu Kristínu Jónsdóttur.
Fullt af öfum og ömmum
„Ég ku vera það, besta amman,“ segir Guðrún og hlær. „Við erum að æfa okkur í að lesa og síðan, þegar við erum búnar að því þá förum við og leikum okkur. Spilum.“
„Hér er fullt af öfum og ömmum. Hámenntaðir háskólakennarar, leikskólakennarar og þroskaþjálfar og við hjálpumst að með íslenskuna,“ segir Inga Þyrí Kjartansdóttir formaður Sléttuúlfanna og forsprakki verkefnisins.
Skiptir miklu máli
Lýður Sörlason var mættur á staðinn og hjálpaði þar Sydney frá Filippseyjum við lestur.
„Maður gerði þetta þegar maður var yngri, að kenna börnunum og barnabörnunum,“ segir Lýður.
„Þetta skiptir gríðarlega miklu máli, bæði námslega og félagslega,“ segir Elsa Herjólfsdóttir Skogland, en hún er svokallaður ÍSAT-kennari í Fossvogsskóla en það stendur fyrir íslenska sem annað tungumál.
„Börnin koma hingað til að æfa sig, æfa lestur og þau eiga auðvitað foreldra sem tala ekki íslensku, mörg.“
Vilhjálmur fékk verðlaunin
Og – eins og jafnan á Degi íslenskrar tungu voru verðlaun Jónasar Hallgrímssonar veitt í dag, í 31. skipti. Þau fá þeir sem hafa sýnt íslenskri tungu ræktarsemi, vakið athygli á henni eða sýnt henni stuðning í verki.
Í ár fékk þau Vilhjálmur Þorsteinsson, stofnandi máltæknifyrirtækisins Miðeindar.
Mikilvægt að halda Dag íslenskrar tungu
Krakkar í 7. bekk í Fossvogsskóla ræddu Dag íslenskrar tungu í skólanum í dag.
„Er það ekki til að bjarga íslenska tungumálinu?“ spurði Styrmir Ragnarsson 7. bekkingur, spurður hvers vegna slíkur dagur væri haldinn.
„Eða bara halda því,“ bætti Marinó Elí Evertsson bekkjarbróðir hans við.
Heiður Hjartardóttir sem er líka í 7. bekk í Fossvogsskóla var sammála þeim og sagði mikilvægt að halda dag sem þennan. „Já, ég myndi segja það. Svo íslenska tungumálið haldi sér.“
Stundum er sagt að kynslóðirnar tali sitt hvort tungumálið.
Low key chopped……
Það er spurning hvort allir skilji þetta samtal Valgerðar Sifjar Pálsdóttur og Freyju Rúnar Vignisdóttur nemenda í 7. bekk sem fréttastofa varð vitni að á göngum Fossvogsskóla:Ég er bara svona low key chopped… eitthvað… ég bara get þetta ekkiÉg er bara með rosalega svona…. bad hair day …. ég er ekki búin að vera fine shyt í dag.Nei… kannski ekki…
Spurð hvort hún og vinir hennar noti stundum orð sem foreldrar eða aðrir fullorðnir skilja ekki segir Heiður svo vera.
Styrmir tekur undir það, en segist ekki alltaf vita hvað orðin þýði, sum sjái hann og heyri á Tik Tok.
„Skibidi Ohio,“ segir Marinó Elí, spurður um dæmi um slík orð.
Hvað þýðir það? „I don´t know. Bara eitthvað sem við segjum.“Skibidí Ohio er bara eitthvað sem við segjum segir 12 ára Reykvíkingur. Dagur íslenskrar tungu er í dag og eldri borgarar kenndu börnum íslensku í gegnum leik. Krakkar í 7. bekk segjast oft nota orð sem fullorðnir skilja ekki.
