Sauðfjárslátrun er lokið í öllum stærri sláturhúsum landsins og sláturdilkum fjölgaði milli ára í fyrsta sinn frá 2017.
„Hún hefur bara sjaldan eða aldrei gengið betur,“ segir Sigurður Bjarni Rafnsson, sláturhússtjóri Kaupfélags Skagfirðinga, um sláturtíðina sem leið.
Bændablaðið greinir frá því að sláturdilkum hafi fjölgað um 5.377 milli ára. Það fjölgaði mest hjá KS sem slátraði tæplega 109 þúsund dilkum til samanburðar við rúmlega 101 þúsund í fyrra.
„Ein af skýringunum er að við töppuðum af frá Húsavík. Það var mikil aðsókn á sama tíma í nokkrar vikur á Húsavík og þeir voru þá bara sprungnir. Það gekk illa fyrir þá að fá fé til að byrja með en á þessum tíma þegar allir vildu komast að gátum við aðstoðað þá við með að tappa af frá þeim. Það er svona hluti af skýringunni, en svo var bara meiri frjósemi hjá bændum,“ segir Sigurður Bjarni.
Þrátt fyrir fjölgun sláturdilka á landsvísu skilar sláturtíðin aðeins 21 tonni meira af kjöti. Það er vegna þess að lömbin voru léttari.
„Þetta byrjaði mjög mjög vel hjá okkur í upphafi sláturtíðar og leit út fyrir að þetta yrði algjört met, en svo þegar líða fór á sláturtíðina hrapaði meðalvigtin niður og svo sjáum við það að gerðin er aðeins að falla,“ segir Sigurður Bjarni.
Gerð vísar til kjötmagns á beinum. Sigurður Bjarni segir hugsanlegt að það minnki vegna átaks í ræktun fjár með verndandi arfgerð gegn riðu.
„Ég held þetta sé svona aðeins að koma niður á gerðinni, en svo vinna menn sig út úr því vonandi.“
