Stjórnendur nethýsingarfyrirtækisins 1984 ákváðu í dag að stöðva tímabundið alla þjónustu fyrirtækisins. Þetta gerðu þeir vegna umfangsmikillar og alvarlegrar tölvuárásar á innviði fyrirtækisins í tölvutækni.
Í tilkynningu frá 1984 og CERT-IS segir að umfang árásarinnar sé enn til rannsóknar. Fyrstu niðurstöður benda til að þetta sé vel skipulögð og tæknilega háþróuð árás.
Forsvarsmenn 1984 ákváðu að stöðva alla þjónustu tímabundið vegna árásarinnar. DNS og póstþjónustur komast þó fljótlega í gang aftur. Sú þjónusta verður starfrækt undir sérstöku eftirliti.
„ Ákvörðunin er tekin í öryggisskyni, til að takmarka möguleg frekari áhrif árásarinnar, tryggja að unnt sé að rannsaka atvikið með fullnægjandi hætti og koma í veg fyrir að þjónustur verði teknar aftur í notkun áður en öryggi þeirra hefur verið sannreynt.“
Óljóst er hvenær öll þjónusta fyrirtækisins verður komin í fullan gang.
