Í morgun var undirritaður nýr kjarasamningur Sjómannasambands Íslands við Landssamband smábátaeigenda og Samtök smærri útgerða. Þetta er í fyrsta sinn sem gerður er kjarasamningur fyrir smábáta síðan 2012.
Meðal þess sem samið var um er að sjómenn á smábátum fái 3,5% í tilgreinda séreign frá útgerðinni.
Í tilkynningu segir að það sé fagnaðarefni að samningur sé í höfn. Hann sé í anda samnings sem sjómenn gerðu 2024 við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi.
Samningurinn fer nú í kynningu meðal félagsmanna og atkvæðagreiðslu að henni lokinni. Hann á að gilda til 2033, en báðir aðilar geta sagt honum upp á tímabilinu.
Þau félög sem eiga aðild að samningnum auk Sjómannasambandsins eru Félag skipstjórnarmanna, Félag vélstjóra og málmtæknimanna og Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur.
