Sonurinn er laus úr einangrun og mun bera við neyðarvörn

Maður á fertugsaldri sem var handtekinn um síðustu helgi vegna gruns um manndráp í Breiðholti hefur verið látinn laus úr einangrun. Hann ber við neyðarvörn.

Faðir mannsins sem er á sextugsaldri og var sömuleiðis handtekinn fyrir viku var látinn laus úr haldi í gær.

Til átaka kom á milli feðganna og tveggja manna í Breiðholti aðfaranótt sunnudags. Þar beitti sonurinn hnífi og lést annar þeirra sem varð fyrir stungunum. Hinn særðist talsvert, en er ekki í lífshættu.

Voru á Álfinum fyrr um kvöldið

Samkvæmt heimildum fréttastofu náðist atburðarásin á eftirlitsmyndavél og er meðal rannsóknargagna lögreglu. Heimildir fréttastofu herma að allir mennirnir hafi áður en til átakanna kom, verið á sportbarnum Álfinum, sem er í Hólagarði í Breiðholti. Þar hafi þeir sést eiga samskipti.

Gæsluvarðhaldskrafan yfir syninum rennur út á mánudagsmorgun, 9. nóvember, og Elimar Hauksson lögmaður hans segir líklegt að farið verði fram á framlengingu varðhaldsins.

Hann segir að slíkri kröfu verði andmælt á grundvelli neyðarvarnar; umbjóðandi sinn hafi verið að verjast árásum hins látna og samverkamanns hans.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu miðar rannsókn vel og „fáir lausir endar eftir.“


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.