Stefna á að opna fimm Burger King-staði

Stefnt er á að opna fimm Burger King-veitingastaði á Íslandi á næstu árum. Fyrsti staðurinn verður opnaður á bensínstöð N1 við Bíldshöfða.

N1 og Skúli Gunnar Sigfússon hafa stofnað félagið 1954 ehf. sem samið hefur við Burger King um sérleyfi til starfseminnar á Íslandi. Heiti íslenska félagsins vísar til stofnárs Burger King-fyrirtækisins í Bandaríkjunum.

Fyrsti staðurinn verður rekinn með veitingasölu inni á staðnum og í bílalúgu.

Burger King-staðir voru starfræktir á Íslandi frá 2004 til 2008. Rekstrinum var hætt skömmu eftir hrun.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.