Stýrivextir óbreyttir – „Það er að kólna“

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri vonar að stýrivaxtalækkun verði möguleg snemma á næsta ári samhliða kólnun hagkerfisins og hjaðnandi verðbólgu. „En auðvitað höfum við áhyggjur af óvissu.“

Stýrivextir Seðlabankans verða óbreyttir í 8,0% sem er í samræmi við spár viðskiptabankanna. Peningastefnunefnd Seðlabankans segir að verðbólga sé enn of mikil og verðbólguvæntingar yfir markmiði.

Seðlabankinn spáir því að verðbólga fari undir 4% um mitt næsta ár og í 3% undir lok þess.Íslendingar eru við það að ná tökum á verðbólgunni að mati seðlabankastjóra. Stýrivextir verða áfram 8% en bankinn býst við hjaðnandi verðbólgu snemma á næsta ári.

Ásgeir segir erfitt að byrja að lækka vexti núna meðan verðbólgan er eins há og hún er. Seðlabankinn spáir hins vegar tiltölulega mikilli kólnun á næsta ári. „Það má alveg búast við því að það fari mjög kólnandi.“

Ásgeir er viss um að verðbólga sé að fara að lækka. „Við erum að fara að taka hana niður.“

Inntur eftir því segir hann þó stöðuna í byggingargeiranum fara að verða áhyggjuvaldandi, miðað við nýjustu fregnir. „Þetta er eitthvað sem við höfum talað um í þrjú ár – að það væri mögulegt offramboð í uppsiglingu.“