Sýni að almenningur og fjárfestar hafi sömu trú á félaginu og stjórnendur

Fjögur þúsund nýir hluthafar bætast í hluthafahóp Bláa lónsins eftir að áskrift fékkst að öllum þeim 150 milljón hlutum sem boðnir voru upp í almennu útboði félagsins, á 95 krónur á hlut. Útboðinu lauk í gær.

30% hlutanna voru seldir almenningi og hin 70% fjárfestum og öðrum sem vildu kaupa fyrir hærri fjárhæðir.

Þessar tæplega fjögur þúsund áskriftir voru að andvirði 15,3 milljarða króna. Heildarsöluandvirði nam hins vegar 14,3 milljörðum króna og því var umfram eftirspurn um milljarður.

Sigríður Margrét Oddsdóttir framkvæmdastjóri Bláa lónsins segir niðurstöðuna í takt við markmið félagsins og hún sé ekki síður jákvæð fyrir ferðaþjónustuna en félagið.

„Það er auðvitað mjög jákvætt að það sé umframeftirspurn. Hún auðvitað felur það líka samt sem áður í sér að við þurfum að skerða líka hluta af þeim áskriftum sem okkur bárust en við munum bara skerða í samræmi við skilmála útboðsins,“ segir hún.

„Það er líka ofboðslega jákvætt að sérstaklega almenningur, en líka fagfjárfestar og starfsfólk, hafi sömu trú á þessu félagi og þessari vegferð sem við erum á, eins og við,“ segir Sigríður.

Fjárfestum verður tilkynnt um úthlutun ekki síðar en á mánudag. Stefnt er að því að viðskipti með hlutabréf Bláa lónsins hefjist á aðalmarkaði Kauphallarinnar 20. nóvember.