Tækniskólinn krefst tugmilljóna af Hafnarfirði

Stjórnendur Tækniskólans ræða við Reykjavíkurborg um lóð fyrir skólann, báðar í austurhluta borgarinnar. Skólinn krefst tugmilljóna frá Hafnarfjarðarbæ vegna vanefnda.

Eftir að áform um að reisa nýjan Tækniskóla við Flensborgarhöfn í Hafnarfirði runnu út í sandinn vegna vanefnda bæjarstjórnar sem hafði heitið skólanum lóð, hafa stjórnendur skólans leitað annarar lóðar.

Úlfarsárdalur eða Keldnaland

Að minnsta kosti níu sveitarfélög víða um land buðu skólanum land; meðal þeirra Akureyri og Akranes, Selfoss, Reykjanesbær, Borgarfjörður og Reykjavík og stjórnendur skólans eiga nú í viðræðum við borgina.

Egill Jónsson stjórnarformaður Tækniskólans segir að fyrst og fremst sé einblínt á tvo valkosti. „Þetta er hvorutveggja austanmegin í Reykjavíkurborg. Í Úlfarsárdal uppi á Höllunum, nálægt Bauhaus. Hinn kosturinn er efst í Keldnalandinu, eða í Keldnaholtinu.“

En hvorug staðsetningin er sérlega miðsvæðis. Eru þetta góðir kostir? „Það er eitt sem við höfum rætt. Við höfum leitað að kostum sem væru meira miðsvæðis en þetta er gríðarlega stór bygging, hún þarf pláss og það er ekki um marga kosti að velja.“

Tveggja ára tafir á framkvæmdum

Egill segir að bygging nýs Tækniskóla tefjist líklega um tvö ár vegna vanefnda Hafnarfjarðar.

Áður hefur komið fram að Tækniskólinn íhugi að krefja bæinn bóta vegna vanefndanna og fyrir skömmu var slík krafa lögð fram.

Tugmilljóna kröfur

„Við erum í viðræðum við Hafnarfjarðarbæ um þetta og vonum að þetta verði frágengið fljótlega,“ segir Egill sem ekki vill nefna upphæðir í þessu sambandi.

Milljónir? „Já, það eru margar milljónir.“

Tugir milljóna? „Já.“

Hundruð milljóna? „Leyfum þessu bara að koma í ljós.“

Núna fýsti mörg sveitarfélög að taka á móti Tækniskólanum og hafa hann hjá sér. Er búið að slá það allt út af borðinu? „Við viljum ekki útiloka neina möguleika en við ákváðum að fara í viðræður eingöngu við Reykjavíkurborg. Það var einfaldlega langsamlegast álitlegasti kosturinn.“


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.