Telur of þungbært að birta dóm yfir manni sem sótti sér barnaníðsefni

Dómstjóri við Héraðsdóm Reykjavíkur telur að of þungbært yrði fyrir mann, sem í september var dæmdur fyrir vörslu barnaníðsefnis, að birta dóminn yfir honum. Maðurinn var handtekinn fyrir rúmu ári í umfangsmiklum aðgerðum Europol, í tengslum við eina stærstu barnaníðssíðu sem fundist hefur.

Fjallað var um vefsíðuna í Kveik í síðustu viku. Hún hét Kidflix og hafði að geyma yfir 90 þúsund myndir og myndskeið með grófu kynferðisofbeldi gegn börnum. Síðan var byggð upp með hvatakerfi, þar sem notendur sem deildu nýjum myndum inn á síðuna fengu aðgang að frekara barnaníðsefni.

Lögregluyfirvöld báru kennsl á 1.400 notendur síðunnar, þar á meðal tvo Íslendinga. Mál annars þeirra er enn til rannsóknar en hinn hlaut dóm í september. Dómstólum er skylt að birta dóma í sakamálum og er grunnreglan sú að þá eigi að birta innan fimm virkra daga.

Kveikur óskaði eftir afriti af dómnum en fékk synjun, þrátt fyrir að dómstólasýslan hafi nýverið komist að þeirri niðurstöðu að dómurum sé skylt að afhenta blaðamönnum eintök af dómum í sakamálum. Hins vegar sé heimilt að afmá nöfn og önnur atriði sem eðlilegt sé að fari leynt, með tilliti til almanna- og einkahagsmuna.

Kveikur óskaði þá eftir rökstuðningi ákvörðunarinnar, sem dómstjóri byggði á undanþágureglum dómstólasýslunnar, sem veita heimild til að víkja frá almennum reglum dómsúrlausna þegar sérstakar aðstæður réttlæta það. Að auki var óskað eftir dómnum nafnhreinsuðum og án persónugreinanlegra upplýsinga. Til vara var óskað eftir ákæru og niðurstöðu dómsins.

Í rökstuðningi dómstjóra segir að persónulegar aðstæður ákærða liggi til grundvallar ákvörðuninni. Birting dómsins yrði ákærða „sérstaklega þungbær og umfram það sem almennt má búast við.“

Að lokum er upplýst um að maðurinn hafi verið dæmdur fyrir að hafa haft í vörslum sínum 53 ljósmyndir og sjö myndbönd sem sýndu börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt, í tölvuturni og farsíma sem lögregla lagði hald á við húsleit.

Ákærði játaði og var dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi til tveggja ára.