„Ég held að Seðlabankinn sé að gera hér mjög alvarleg mistök í hagstjórninni og auka verulega hér líkur á harðari lendingu heldur en þyrfti,“ sagði Þorsteinn Víglundsson, formaður Samtaka Iðnaðarins, sem var gestur í Kastljósi í kvöld. Hann telur að tvær síðustu ákvarðanir Seðlabankans hafi verið mistök.
Seðlabankinn tilkynnti í morgun að stýrivextir myndu haldast óbreyttir í 8,00 prósentum. Peningastefnunefnd Seðlabankans sagði að verðbólga væri enn of mikil og verðbólguvæntingar yfir markmiði.
„Það er mjög augljóslega að teiknast upp mjög kaldur vetur,“ sagði Þorsteinn. „Sérstaklega þegar það kemur að íbúðarmarkaði.“Formaður Samtaka Iðnaðarins telur að tvær síðustu stýrivaxtaákvarðanir hafi verið mistök og að þær auki líkurnar á of harðri lendingu fyrir efnahaginn. Sérfræðingur Acro verðbréfa telur að Seðlabankinn geti þó ekki slakað á stefnu sinni strax.
Þorsteinn segir að þessi ákvörðun, og sú síðasta þar sem Seðlabankinn hækkaði stýrivexti, hafi alvarleg áhrif á byggingariðnaðinn og efnahag landsins. Hann telur Seðlabankann ekki vera að horfa nægilega langt fram í tímann. Bankinn sjálfur geri ráð fyrir því að verðbólga verði komin niður í 3% við lok næsta árs.
„Við allar kringumstæður á Seðlabankinn að vera að horfa á hagvaxtarþróun og verðbólguþróun 12 til 24 mánuði fram í tímann og bankinn er einfaldlega ekki að gera það. Hann er að horfa mjög þröngt á skammtímastöðu,“ segir Þorsteinn sem telur að heimsmarkaðsverð á olíu spili þar stórt hlutverk. Það sé þó eitthvað sem Seðlabankinn hafi enga stjórn á.
Hátt vaxtastig stærsta vandamálið á íbúðamarkaði
Þorsteinn segir að óveðursský hafi verið á lofti í töluverðan tíma og að hinn almenni vinnumarkaður hafi verið að bregðast við síðasta eitt og hálft ár með fækkun á störfum.
Aðspurður hvernig fyrirtæki innan byggingageirans séu að bera sig að í núverandi ástandi segir Þorsteinn að þau séu að skera niður kostnað alls staðar og fækka starfsfólki.
„En stærsta vandamálið á íbúðarmarkaði í dag er einfaldlega mjög hátt vaxtastig og þar af leiðandi mjög lítil hreyfing, sérstaklega á nýju húsnæði,“ segir Þorsteinn.
„Þessir háu vextir eru farnir að bíta óheyrilega mikið,“ segir hann.
Telur Seðlabankann ekki geta slakað á stefnu sinni
Brotlending fram undan er yfirskriftin á greiningu Acro verðbréfa sem snýr að húsnæðismarkaði og byggingariðnaði. Þar er talið mögulegt að tugir eða jafnvel hundruð nýbygginga gætu lent í eigu bankanna á næstu mánuðum.
Eggert Þröstur Þórarinsson, sérfræðingur hjá Acro verðbréfum, segir að mjög alvarleg staða sé að myndast á íbúðamarkaði.
„Það er mikil sölutregða á nýbyggingum sem veldur því að það virðist taka allt að tvö ár að selja nýbyggingar,“ segir hann. Því vaxi fjármagnskostnaður hjá verktökum sem þurfi að sitja lengi á íbúðunum. Eitt sem Eggert telur útskýra þetta er að verulega hafi dregið úr fólksflutningum til Íslands.
Eggert segir að allar hagspár geri ráð fyrir því að verðbólga lækki hratt á næsta ári. Hann telur engu að síður að Seðlabankinn hafi ekki svigrúm til þess að lækka vexti þar sem slíkt gæti orðið til þess að spár um hjöðnun verðbólgu myndu ekki ganga eftir.
„Þetta verður mjög sársaukafullt og það mun kosta fórnir að ná verðbólgunni niður en bankinn getur lítið annað við þessar aðstæður en að sjá til og vonast til að verðbólgan lækki á næsta ári og þá gæti vaxtastigið farið að lækka með,“ segir Eggert.
