Efla þarf sérfræðiþekkingu í öllu kerfinu á málum sem varða kynferðisbrot gegn börnum, sérstaklega á netinu og samfélagsmiðlum.
Þetta segir Svala Ísfeld Ólafsdóttir, dósent við lagadeild HR.
Kynferðisofbeldi færist stöðugt í aukana, sérstaklega í gegnum netið.
Aðgengi að börnum hefur aldrei verið auðveldara.
Þetta kom fram í þætti Kveiks þar sem fjallað var um kynferðisbrot gegn börnum.
Mikilvægt að geta tekist á við nýja brotavettvanga
Svala segir internetið og samfélagsmiðla vera nýja brotavettvanga sem mikilvægt er að takast á við. Mikilvægast af öllu sé að mönnun lögreglunnar sé þannig að hægt sé að sinna rannsóknum og forvirkum rannsóknum.
„Og að tæknibúnaður lögreglunnar sé þannig að þeir geti sinnt þessum rannsóknum af einhverju viti.“
Hún segir einnig nauðsynlegt að sérkunnátta skili sér til lögreglunnar, ákærenda og dómara.
„Það þarf að vera sérkunnátta og þekking í kerfinu öllu.“
Hækkaður refsirammi gefur til kynna alvarleika brotanna
Í þætti Kveiks kom fram að lögreglan hefur skráð 210 brot vegna barnaníðsefnis frá árinu 2021, samkvæmt upplýsingum frá ríkislögreglustjóra.
Á árunum 2021 til 2023 fóru 62 til 79 prósent brota vegna vörslu og framleiðslu til ákærusviðs, en hlutfallið var lægra þegar kom að áhorfi, 43 til 75 prósent. Stór hluti nýrri mála er enn til rannsóknar.
2022 var refsirammi fyrir vörslu á myndefni sem sýnir kynferðislega misnotkun á barni, eða sýnir barn á kynferðislegan hátt, hækkaður úr tveimur árum í sex.
Svala segir að með hækkun refsirammans sé verið að gefa skýrt til kynna að kynferðisbrot gegn börnum eigi að taka alvarlega.
„Og kalla eftir að þau verði metin samkvæmt sínum alvarleika.“
