„Þetta er eins svört saga og hægt er“

„Þetta er bara altjón, það er bara svoleiðis. Þetta átti nú að vera lífeyrissjóður okkar og barnanna en þetta fór bara því miður út um gluggann,“ segir Elís Árnason veitingamaður sem átti kaffihúsið Adesso og veitingastaðinn Sport og Grill í Smáralind. Hann rak Adesso í rúm 20 ár og Sport og Grill þar til árið 2024 þegar hann seldi þessa staði til fjárfestanna Helga Magnúsar Hermannssonar og Jóhannesar Birgis Skúlasonar.

Elís segist hafa bara hafa fengið lítinn hluta kaupverðsins greiddan og að hann hafi á endanum þurft að taka tugmilljón króna bankalán til að borga til baka lán sem hvíldu á fyrirtækjunum og hann var í persónulegum ábyrgðum fyrir. Hann segir tjón sitt í viðskiptunum nema um 100 milljónum. „Þetta er eins svört saga og hægt er,“ segir hann.

Báðir staðirnir, Adesso og Sport og Grill, urðu gjaldþrota eftir að Elís seldi þá til Helga Magnúsar.

Helgi Magnús hefur ítrekað verið til umfjöllunar í fjölmiðlum síðustu mánuðina vegna fyrirtækja sem hann hefur átt sem farið hafa í þrot eða verið lokað af yfirvöldum.

Í síðustu viku var sagt frá því að Skatturinn og lögreglan hefðu innsiglað Hamborgarafabrikkuna á Höfðatorgi. Rúmlega tvítugur sonur Helga er skráður fyrir móðurfélagi Hamborgarafabrikkunnar ásamt Jóni Erni Jakobssyni, tæplega sjötugum manni sem lengst af hefur verið í rekstri tengdum sjávarútvegi. Þeir eignuðust Hamborgarafabrikkuna hins vegar aðeins í mars og hafa því einungis átt veitingastaðinn í rúmlega hálft ár.

Rætt er við Elís og fjallað um þessa viðskiptasögu Helga Magnúsar Hermannssonar í fréttaskýringaþættinum Þetta helst í dag. Þáttinn má hlusta á hér:Elís Árnason seldi tvo veitingastaði til Helga Magnúsar Hermannssonar árið 2024. Hann segist hafa orðið fyrir 100 milljóna króna tjóni í viðskiptunum. Talsvert hefur verið fjallað um Helga Magnús í fjölmiðlum, nú síðast út af Hamborgarafabrikkunni.

Tengsl við 23 félög

Helgi Magnús tengist alls ellefu félögum í hlutafélagaskrá. Þetta eru ekki bara veitingastaðir heldur líka dekkjaverkstæði, fasteignafélög, garðyrkjufyrirtæki og vörubílafyrirtæki. Þegar söguleg gögn um fyrirtækjatengsl Helga Magnúsar eru skoðuð sést að í gegnum tíðina hefur hann hefur haft tengsl við alls 23 félög, meðal annars sem prókúruhafi og eigandi. Mörg af þessum fyrirtækjum hafa orðið gjaldþrota.

Ein af spurningunum sem vaknar þegar þessi saga er skoðuð er hver sé eiginlega tilgangurinn með því að kaupa öll þessi fyrirtæki sem yfirleitt fara nær samstundis í þrot eins og raunin var með þessa tvo veitingastaði. Viðskiptamódelið virðist vera að taka yfir staði fyrir lágt verð, svo dregst að borga birgjum, starfsmönnum, opinberum aðilum og öðrum sem fyrirtæki þurfa að greiða og svo fara fyrirtækin í þrot eða eru innsigluð af skattayfirvöldum. Á meðan fyrirtækin eru starfandi eru þau hins vegar, eða geta verið, tekjuskapandi en á sama tíma er dregið úr kostnaði.

Fréttastofa hefur greint frá því að skiptastjóri eins þeirra félaga Helga Magnúsar sem farið hefur í þrot hafi höfðað mál gegn honum fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem krafan er sú að hann verði dæmdur í atvinnurekstrarbann.

Slíkt atvinnurekstrarbann var einungis sett inn í lög um gjaldþrotaskipti árið 2022. Í slíku banni felst að einstaklingur má ekki koma að rekstri félaga í þrjú ár. Eins og segir í lögunum þá eru skilyrði atvinnurekstrarbanns að viðkomandi einstaklingur teljist ekki hæfur til að stýra félagi sem rekið er með takmarkaðri ábyrgð eigenda vegna skaðlegra eða óverjandi viðskiptahátta við stjórnun félags.

Telur að stöðva þurfi slíka háttsemi

Elís segir að hann telji að stöðva þurfi fjárfesta sem reka veitingastaði og hegði sér með þessum hætti. „Auðvitað þarf bara að stoppa svona menn. Svona menn kom óorði á veitingabransann þar sem fagmenntaðir menn, eins og maður sjálfur er, eru að reyna að reka veitingastaði en ekki einhverjir svona galgopar sem kunna ekki að reka veitingastaði. Þetta eru ekki veitingamann, þetta er einhvers konar annars konar starfsemi.“

Fréttastofa hefur heimildir fyrir því að minnsta kosti einn skiptastjóri sem stýrði búi félags sem Helgi Magnús átti hafi kært hann til héraðssaksóknara. Skiptastjórum ber að senda slíkar kærur til ákæruvaldsins ef skattar og opinber gjöld hafa ekki verið greidd í fyrirtækjum.

Helgi Magnús Hermannsson vildi ekki koma í viðtal við fréttastofu þegar eftir því var leitað.