Björgunarsveitir og viðbragðsaðilar eru á vettvangi alvarlegs slyss á sunnanverðu Snæfellsnesi. Bifreið fór þar út í á.
Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út.
Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, staðfestir þetta í samtali við fréttastofu.
Jónas Hallgrímur Ottósson, yfirlögregluþjónn lögreglunnar á Vesturlandi, segir að tveir hafi verið í bílnum. Slysið átti sér stað rétt áður en komið er að Vatnaleið
Annar þeirra sem voru í bílnum komst út af sjálfsdáðum en hinn þurfti aðstoð. Ekki er vitað um líðan þess seinni. Vinna stendur enn yfir á vettvangi.
Fréttin verður uppfærð.
