Roberto Luigi Pagani, aðjúnkt við Háskóla Íslands, hefur miklar áhyggjur af því að námsleiðin íslenska sem annað mál verði órekstrarhæf.
Háskóli Íslands samþykkti nýverið að innleiða skólagjöld fyrir erlenda nemendur frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins sem þeir verða að greiða til að stunda nám við skólann. Upphæðirnar nema frá 1,45 milljónum króna upp í 3,25 milljónir fyrir veturinn.
„Þannig myndi hverfa mjög mikilvægur vettvangur til þess að læra tungumálið, og ekki bara mikilvægur vettvangur heldur eini vettvangurinn fyrir þá sem þurfa að tileinka sér getustig sem krafist er t.d. á Landspítalanum.“
Setji kröfur en takmarki á sama tíma aðgang að námi
Námsleiðin er sú eina á landinu sem býður fólki upp á að læra íslensku á stiginu B2. Roberto segir því stjórnvöld gera kröfu til innflytjenda um að læra íslensku en takmarki á sama tíma aðgang þeirra að náminu.
„Ég vil þó taka skýrt fram að við erum ekki að biðja um ókeypis nám fyrir alla, langt frá því, við erum að biðja erum að biðja um mjög sérstaka undanþágu fyrir fólk sem vinnur þegar á Íslandi og er að borga skatta hér.“
Hann segir að stór hluti þessa hóps vinni í heilbrigðiskerfinu og því sé mikilvægt að þessi hópur nái góðum tökum á tungumálinu mjög fljótt.
„Þetta gerist mjög hratt í Háskóla Íslands því þar er um háskólanám að ræða.“
Roberto segir að um 300 nemendur sæki nám í þremur námsleiðum sem eru í boði við HÍ. Þar af komi á bilinu 70-75% þeirra frá löndum utan ESB.
Ekki hraðleið að dvalarleyfi
Spurður út í þá umræðu sem hefur skapast um að nemendur þurfi ekki á háskólanámi að halda til að læra íslensku bendir Roberto á að það skipti máli í hvaða tilgangi tungumálanámið er sótt.
„Ef mann langar að tileinka sér nóg til að bjarga sér í daglegu lífi þá sé alveg nóg að fara í tungumálaskóla og læra í sjálfsnámi,“ segir Roberto. „En til þess að ná mjög góðum tökum á tungumálinu þarf kerfisbundið nám.“
Hann segir enn fremur að engin dæmi séu um að fólk sé tekið inn í íslenskunám sem það stundi síðan ekki til þess að fá dvalarleyfi á Íslandi. Nú þegar séu til staðar reglur sem koma í veg fyrir það.
Hann útskýrir að nemendur þurfi á hverju ári að sýna fram á að þeir hafi náð 75% af þeim einingum sem samsvara fullu námi til þess að fá dvalarleyfi endurnýjað.
„Svo eru náttúrulega inntökuskilyrði sem eru mikilvægar síur. Það er ekki eins og hver sem er geti sótt um nám og fengið aðgang að námi í íslensku við Háskóla Íslands,“ segir Roberto Luigi Pagani.
Hægt er að horfa á þáttinn í heild sinni hér fyrir neðan.Aðjúnkt við Háskóla Íslands segist hafa miklar áhyggjur af því að námsleiðin íslenska sem annað mál verði órekstrarhæf. Háskólinn innleiddi nýverið skólagjöld sem nemendur frá löndum utan EES þurfa að greiða til þess að stunda nám við skólann.
