Í dag var undirritaður samningur milli Eyrie DC og Norðurþings um 8,2 hektara lóð við Bakka til næstu fimmtíu ára, með möguleika á framlengingu. Á lóðinni á að rísa gagnaver, sem heimildir RÚV herma að sé á vegum tæknirisans Microsoft.
„Við höfum unnið að undirbúningi gagnaversins á Bakka í meira en tvö ár og höfum verið í nánu samstarfi við Norðurþing undanfarna mánuði. Undirritunin í dag er því stór áfangi fyrir okkur,“ segir Þóra Helgadóttir, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Eyrie DC.
Fréttastofa RÚV sagði frá því fyrr í mánuðnum að skipulagsráð Norðurþings hefði úthlutað Eyrie DC lóð undir gagnaver og framundan væri vinna við að grafa tilraunarholur.
Í fréttatilkyningu frá Norðurþingi og Eyrie DC segir að samhliða lóðarleigusamningnum hafi verið skrifað undir samstarf við nærsamfélagið í Norðurþingi. Þar mun Eyrie DC leggja til framlag í samfélagssjóð sem mun styrkja verkefni á sviði menntunar, íþrótta, menningar og fleira.
„Með þessum langtímasamningi leggjum við grunn að umfangsmikilli uppbyggingu á svæðinu. Báðir aðilar viljað að fyrirhuguð starfsemi nýtist íbúum Norðurþings til lengri tíma og lögðum því áherslu á að samhliða lóðarúthlutuninni yrði samið um samstarf við nærsamfélagið. Það er því afar ánægjulegt að undirrita báða samningana í dag,“ segir Bergþór Bjarnason, sveitarstjóri Norðurþings.
Stefnt er að því að framkvæmdir hefjist árið 2027 og að fyrsti áfangi gagnaversins verði tekin í notkun árið 2028.
