Fimm stöður voru lagðar niður hjá embætti ríkislögreglustjóra í dag. Ein þeirra var þó tímabundin ráðning sem dregin var til baka. Þetta staðfestir Rannveig Þórisdóttir, sviðsstjóri þjónustusviðs hjá embættinu.
„Það eru búnar að vera aðgerðir í svolítinn tíma. Ekki búið að ráða í störf þegar fólk hefur hætt og svo voru uppsagnir í dag,“ segir hún.
Ein þeirra sem fengu uppsagnarbréf í dag er Hjördís Guðmundsdóttir, samskiptastjóri almannavarnadeildar. „Mér var sagt upp í dag og starf mitt lagt niður,“ segir hún.
Hjördís segir síðastliðin sex ár hjá almannavörnum hafa verið viðburðarík og lærdómsrík. „Þetta voru viðburðarík og góð sex ár.“
Rannveig segir fjárheimildir embættisins vera þannig að ráðast þurfti í aðgerðir. Í heildina hafa þær haft áhrif á 17 stöður. Ekki er fyrirséð að það verði ráðist í fleiri uppsagnir hjá embættinu.
