Útlitið gott ef kíkt er undir húddið

Allar forsendur eru til að verðbólga gangi hratt niður í byrjun næsta árs að mati aðalhagfræðings Kviku banka en til þess að það gerist þurfi að færa fórnir.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri fór yfir vaxtaákvörðun gærdagsins á peningamálafundi Viðskiptaráðs í morgun. Yfirskrift fundarins var „hagkerfi í ölduróti“ en seðlabankastjóri sá ástæðu til að mótmæla þeirri lýsingu því í sögulegu samhengi ríkti mikill stöðugleiki í hagkerfinu. Ásgeir ítrekaði það sem hann sagði í gær að hann væri sannfærður um að verðbólgan færi hratt niður snemma á næsta ári. Hafsteinn Hauksson, aðalhagfræðingur Kviku banka, tekur undir það.

„Kannski aldrei þessu vant þá finnst mér það alveg trúverðugt að þetta sé að koma hjá okkur. Undirliggjandi verðbólga er ekki mikil og það sem fer að gerast núna í desember, janúar, mars og síðan fram eftir ári er það að svona einskiptishækkanir sem við glímdum við á síðasta ári byrja að detta út úr 12 mánaða samanburði í verðbólgunni. Og þá ætti verðbólgan svona mekanískt að lækka hjá okkur.“

Nær allir undirliggjandi þættir vísi í rétta átt. „Okkur líður kannski stundum eins og þetta hvorki gangi né reki hjá okkur. Við erum auðvitað með sex prósenta verðbólgu sem er mjög hátt og búið að vera lengi. En ég segi, þegar við lítum undir húddið þá gengur þetta betur en þetta gæti virst.“

Með sexupar á hendi

En að kveða niður verðbólgu er ekki sársaukalaust. Það kallar á það sem hagfræðingurinn kallar fórnarskipti, að vega og meta hvort áherslan eigi að vera á að ná niður verðbólgu eða örva hagvöxt. Áherslan hefur verið á hið fyrrnefnda og það þýðir að færa þarf fórnir. „Við erum að sjá einkaneyslu ganga niður, greiðslukortaveltu gefa eftir, vandræði í byggingageiranum. Það er þá þessi fórnarkostnaður við það að ná verðbólgunni niður. Stefnusmiðir eru með það sem ég kalla sexupar á hendi, það er að segja sex prósenta verðbólgu eða sex prósenta atvinnuleysi. Og það setur stefnusmiði í mjög erfiða stöðu.“