Gular og appelsínugular viðvaranir vegna norðan- og norðvestan stórhríðar eru enn í gildi fyrir Austurland að Glettingi, Austfirði, Suðausturland og miðhálendið. Enn er mjög hvasst á austanverðu landinu að sögn Haraldar Eiríkssonar veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.
„Það er samt farið að draga úr ofankomunni og þetta er orðið meira éljakennt og úrkoma. Það á bara hægt að draga úr þessu í dag.“
Ekki er þó allt að detta í dúnalogn.
„Hún verður þrálát þessi norðanátt. Svona hægt og sígandi dregur úr þessu og óveðrið verður að mestu gengið niður síðdegis.“
Haraldur segir útlit fyrir kulda áfram og skaplegt veður áfram á morgun og mánudag. „En þetta veður, ég myndi ekki segja að það sé alveg að ganga niður en það versta er að verða búið.“
Viðvaranirnar falla úr gildi ein af annarri eftir því sem líður á daginn og sú seinasta um og eftir miðjan dag. Lægðin sem olli stórhríðinni á Norðurlandi í nótt er tekin að færast til austurs og fjarlægist smám saman. Í hugleiðingu veðurfræðings segir að vindur sé almennt orðinn skaplegur um vestanvert landið og úrkomulaust að heita.
Eftir hádegi verða eingöngu gular viðvaranir á Austfjörðum og suðaustanlands en áfram dregur úr vindi og styttir líka upp allra austast. Allhvöss norðvestanátt og dálítil él verða allra austast í kvöld en annars mun hægari vindur.
Víða verður bjart veður og herðir á frosti. Á morgun, sunnudag, verður kominn hæðarhryggur yfir landið. Vindur hægur og léttskýjað mjög víða. En hins vegar mun kuldaboli bíta býsna fast á móti, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings.
