Veðurstofan varar við ísstíflu í Laxá

Veðurstofan vaktar ísstíflu í Laxá við Helluvað á Mývatni.

Mikið frost hefur verið norðanlands undanfarna daga. Svo kalt er að Laxá, sem rennur úr Mývatni, er farin að frjósa. Vatnið frýs við árbotninn og það veldur því að vatnsborðið hækkar. Verði stíflan viðvarandi getur það leitt til þess að áin flæði yfir bakka sína og jafnvel yfir þjóðveg 1. Þegar fréttastofa kom þar við í dag var allt með kyrrum kjörum. Íbúar eru hvattir til að hafa samband við Veðurstofuna ef breytingar sjást á ánni.