Gular og appelsínugular veðurviðvaranir hafa verið gefnar út fyrir mestallt landið eftir hádegi í dag. Þær vara fram á laugardagsmorgun.
Fyrstu viðvaranirnar taka gildi á norðanverðu landinu í hádeginu. Þar er von á norðvestanhvassviðri með snjókomu í dag. Í kvöld gerir norðanstórhríð á Norðurlandi og austanlands í nótt.
Búast má við mikilli hálku víða um land, einnig á höfuðborgarsvæðinu.
Veðurstofan spáir talsverðri snjókomu á Norðurlandi miðju. Veður verður hægara suðvestanlands og víða bjart syðra.
Í kvöld verður hvassast á Norðausturlandi auk snjókomu en suðaustantil verður úrkomulítið.
Í nótt verður norðan 18-25 m/s með snjókomu austanlands en hægara vestantil. Á morgun dregur smám saman úr vindi og ofankomu.
Á vef Vegagerðarinnar má sjá að margir vegir verða á óvissustigi og geta lokast með stuttum fyrirvara. Þetta á meðal annars við um Holtavörðuheiði og Vatnsskarð.
