Vegagerðin varar við hviðum

Veðurfræðingur Vegagerðarinnar bendir á að búast megi við vindhviðum um og yfir 25 m/s í suðvestlægri átt á Vestfjörðum, Norðvesturlandi og Tröllaskaga eftir hádegi. Þetta getur skapað varhugaverð skilyrði fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind.

„Lægir í kvöld, en ekki fyrr en eftir miðnætti á Tröllaskaganum,“ segir í tilkynningu. Ríkisútvarpið ohf / Jóhannes Jónsson


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.