Verkfallsboðun ekki alltaf til þess fallin að leysa úr deilum

Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari segir allan gang á því hvaða áhrif verkfallsboðun hafi í viðkvæmum kjaraviðræðum. Embættinu hefur ekki borist verkfallsboðun flugmanna Icelandair og því hafa samninganefndir ekki verið boðaðar á fund sáttasemjara.

Flugmenn Icelandair í Félagi íslenskra atvinnuflugmanna, FÍA, hafa samþykkt ótímabundnar verkfallsaðgerðir í leiguflugi félagsins. Þær eiga að hefjast á miðnætti 20. nóvember, eftir rúma viku, og taka bæði til farþega- og fraktflugs þar sem bæði brottfarar- og áfangastaðir eru utan Íslands.

Hætta á að virki í aðra átt

„Það er ekki alltaf til þess fallið að greiða úr deilum, þegar menn fara að munda þetta vopn,“ segir Ástráður spurður um hvaða áhrif verkfallsboðunin gæti haft á gang kjaraviðræðna.Stundum halda menn að þetta ýti við samningum og komi viðræðum í gang, en það er hætta á að þetta virki í aðra átt.

Síðasti fundur fyrir tveimur vikum og enginn boðaður

Samningar flugmannanna hafa verið lausir í rúmt ár, frá 30. september í fyrra þegar kjarasamningur þeirra sem var gerður í maí 2020 rann út. Kjaradeilu þeirra við Icelandair var vísað til ríkissáttasemjara í lok apríl og síðasti formlegi fundur samninganefndanna þar var haldinn 28. október, fyrir um tveimur vikum.

Óformlegar viðræður hafa þó verið á milli samninganefnda síðan þá.

Venjan er sú, að þegar verkfall er boðað, að embætti ríkissáttasemjara fái verkfallsboðunina og boði formlegan fund í framhaldi af því. Slík boðun hefur ekki borist embættinu og því enginn fundur boðaður.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.