„Við ætlum hvergi að hvika frá hallalausum fjárlögum“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir að ríkisstjórnin ætli að skila hallalausum fjárlögum. „Við ætlum hvergi að hvika frá hallalausum fjárlögum,“ sagði hún í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag.

Þar krafði stjórnarandstaðan hana svara vegna þess sem kemur fram í nýútgefnum Peningamálum. Í þeim spáir Seðlabankinn verri afkomu ríkissjóðs en fjárlög 2027 gera ráð fyrir.

Seðlabankinn spáir að halli ríkissjóðs verði um 16,5 milljarðar króna. Ríkisstjórnin hefur hins vegar heitið því að stöðva hallarekstur ríkisins og gerir ráð fyrir fimm milljarða afgangi.

„Fjárlögin eru aðhaldssöm“

Þorgerður Katrín bendir á að vextir séu óbreyttir.

„Seðlabankinn spáir því að verðbólga minnki um helming árið 2027. Við fáum uppfærðar forsendur 2. umræðu fjárlaga en eins og ég segi: Við ætlum ekki að hvika frá hallalausum fjárlögum. Já, fjárlögin eru aðhaldssöm. Við höfum sagt að fyrir hverja krónu sem við öflum í tekjur erum við að spara tvær,“ sagði hún á þingi í dag.

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að ríkisstjórnin þyrfti að taka á ríkisrekstrinum.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, tók í svipaðan streng. Hann sagði að ríkisstjórnin hefði aukið útgjöld ríkisins stórkostlega og vildi vita hvort ríkisstjórnin ætlaði að breyta einhverju í stefnu sinni í efnahagsmálum.

„Við erum einfaldlega í miðri á, þessi ríkisstjórn. Við ætlum ekkert að stoppa þar. Við ætlum að klára verkefnin,“ segir Þorgerður Katrín.Utanríkisráðherra segir að ríkisstjórnin ætli að reka ríkissjóð með afgangi þrátt fyrir spár Seðlabankans um annað. „Fjárlögin eru aðhaldssöm,“ segir hún.