Birgðageymar undir heita vatnið á Akureyri eru komnir upp fyrir öryggismörk. Notkun á heitu vatni var um tíma meiri en framleiðsla og íbúar beðnir að spara það.
„Staða geymanna er bara góð og yfir 90%. Við erum komin með fulla stjórn á þessu og getum bætt í ef meira þarf,“ segir Eyþór Björnsson, forstjóri Norðurorku.
„Það tókst að gera við. Þetta er að vísu bráðabirgðaviðgerð en við komum holunni í virkni seinni partinn í gær og gátum þá slökkt á olíukatlinum og kerfið var í rauninni bara á fullri siglingu í nótt að rétta úr kútnum og við erum komin á góðan stað núna.“
Bilunin varð í dælu á Laugalandi.
„Dælan brann og húsið allt í vor og það hefur tekið tíma að endurbyggja það og allan búnaðinn sem brann þarna líka.“
„Í góðum málum eins og er“
Íbúar og stórnotendur voru beðnir um að fara sparlega með heita vatnið en Eyþór segir nú vera óhætt að nota það með eðlilegum hætti. Norðurorka sé tilbúin fyrir veturinn en atvik sem þessi minni á mikilvægi þess að tryggja nauðsynlega innviði.
„Við erum eins vel undirbúin og við getum en það sem þetta kennir okkur er að við erum brothætt. Þetta kerfi er brothætt hjá okkur vegna þess að afkastagetan er bara ekki meiri en þetta. Við megum illa við því að fá bilanir í svona þungavigtarinnviðum eins og holunum fram á Laugalandi,“ segir Eyþór.
„Við erum í góðum málum eins og er og teljum okkur vera eins vel undirbúin og við mögulega getum miðað við allar aðstæður.“
