Þingmenn stjórnarandstöðunnar fóru hörðum orðum um Daða Má Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, við upphaf þingfundar í dag. Þeir sögðu orðið ljóst að ráðherra hefði sagt þinginu ósatt eða talað með mjög villandi hætti þegar hann tjáði sig um starfslok Harðar Arnarsonar, forstjóra Landsvirkjunar, í þingsal.
RÚV greindi frá því í gær að Hörður hefði gert athugasemdir við starfshætti stjórnar fyrirtækisins og fjármálaráðuneytisins frá því í lok síðasta árs. Hann taldi afskipti stjórnarinnar óeðlileg og taldi að þau stefndu rekstri Landsvirkjunar í hættu.
Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í viðtali við RÚV í morgun að Daði Már þyrfti að svara betur fyrir afsögn Harðar. Hann hafi ekki sagt satt og rétt frá um aðdraganda og ástæður uppsagnar Harðar.
Liggur fyrir að upplýsingarnar voru ekki réttar
Guðlaugur Þór tók fyrstur til máls við upphaf þingfundar í dag og síðan fylgdi hver þingmaður stjórnarandstöðuflokkanna á fætur öðrum í fótspor hans. Hann vísaði til orða Daða Más á Alþingi þegar hann var spurður út í starfslok Harðar.
„Nú liggur það fyrir að þær upplýsingar sem hæstvirtur ráðherra gaf þinginu eru ekki réttar. Þær eru ekki réttar.“
Guðlaugur Þór sagði að Daði Már hefði sagt með miklum þjósti að öll sagan væri sögð og að forsætisráðherra Landsvirkjunar hefði ekki hrökklast úr starfi. Guðlaugur Þór sagði að það væri augljóslega ekki rétt.
Guðlaugur Þór sagði að Daði Már þyrfti að mæta fyrir þingið strax í dag. „Þetta mál þolir enga bið.“
Fundahöld ráðherra með stjórn koma á óvart
Sigríður Á. Andersen, þingmaður Miðflokksins, sagði það hafa komið á óvart að stjórn Landsvirkjunar hefði níu sinnum fundað með fjármálaráðherra án þess að forstjóri fyrirtækisins væri viðstaddur. Hún sagði að bragur væri á því að ráðherra kæmi fyrir þingið og flytti skýrslu um stjórn Landsvirkjunar.
Ráðherrar megi ekki segja ósatt
Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að ráðherrar hefðu ekki leyfi til að segja ekki satt og rétt frá því sem undir þá heyrði. Hún krafðist þess að Daði Már kæmi fyrir þingið þegar í dag.
„Nú erum við að sjá atburðarás út frá gögnum sem er í besta falli mikið misræmi sem þarfnast mikillar útskýringar gagnvart þinginu og í versta falli ósannindi af hálfu ráðherra.“
Daði Már hefði fullyrt að Hörður hefði ekki hrökklast úr starfi, þetta hefði hann gert ári eftir að hafa sjálfur breytt fundarboði þannig að forstjórinn yrði ekki með.
Vilja ráðherrann í þingsal fyrir lok dags
Berþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, sagði að sér væri brugðið með það hvernig fjármálaráðherra hefði farið með það mál sem sneri að stjórnun Landsvirkjunar. Hann hvatti forseta þingsins til að sjá til þess að ráðherrann kæmi fyrir þingið fyrir lok dags svo hann gæti farið yfir málið og mögulega beðist afsökunar.
Fyrrum stjórnarmanni brugðið
Jens Garðar Helgason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi stjórnarmaður í Landsvirkjun, sagði að mjög óeðlilega væri staðið að því hvernig Landsvirkjun væri stjórnað. Hann sagðist til dæmis aldrei hafa fundað með embættismönnum fjármálaráðuneytisins líkt og núverandi stjórn hefði ítrekað gert.
Hann talaði um þöggun og yfirhylmingu og sagði að svo virtist sem ráðherra hefði sagt ósatt í ræðupúlti Alþingis.
Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins, gerði athugasemd við að þingmenn stjórnarandstöðunnar krefðust svara af fjarstöddum manni. Hann sagði ráðherrann verða til svara í fyrirspurnartíma síðar í vikunni.
Sjálfgefið að þingnefnd skoði málið
Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, sagði sjálfgefið að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis tæki málið til skoðunar. Hann hvatti til þess að Daði Már kæmi fyrir þingið sem fyrst, í síðasta lagi í óundirbúnum fyrirspurnum á morgun.
„Hann var hér í gær en við vissum þá ekki af því að hann hefði sagt ósatt í ræðustól, við vissum ekki að væru búin að liggja inni í hálft ár frá fráfarandi forstjóra þar sem hann óttaðist að stjórnin væri með pólitísk afskipti. Það er til annað orð um það, það er sjaldan notað á Íslandi,“ sagði Sigurður Ingi en nefndi það orð ekki.
Sigurður Ingi var fjármálaráðherra í átta mánuði og átti þá einn fund með stjórnarformanni og forstjóra.
Nokkrir þingmenn töluðu um spillingu, þeirra á meðal Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hann vísaði til orða Harðar um að einstakir stjórnarmenn hefðu haft afskipti af daglegri starfsemi fyrirtækisins. „Þetta er pólitísk íhlutun, þetta er pólitísk spilling.“
