Rannsókn á tölvuárás á íslenska nethýsingarfyrirtækið 1984 bendir til þess að upphaflegt markmið hennar hafi verið að taka niður vefsíður sem styðja málstað Palestínu.
Í tilkynningu frá 1984, sem varð fyrir tölvuárás í gærmorgun, segir að starfsmenn, sérfræðingar Syndis og aðrir öryggisráðgjafar vinni allan sólarhringinn við að rannsaka atvikið, tryggja öryggi kerfanna og koma þjónustunni í eðlilegt horf.
Ráðgert er að tölvupóstþjónustu og DNS-þjónustu verði komið aftur í gang um helgina. Frekari upplýsingar um stöðu vefhýsingarþjónustu fyrirtækisins verða gefnar út á morgun.
„Allar tímasetningar eru þó háðar því að hægt sé að tryggja öryggi kerfanna áður en þau eru opnuð á ný,“ segir í tilkynningu.
Vefsíða Félagsins Íslands-Palestínu liggur niðri. Talið er að árásaraðilarnir hafi reynt að nýta sér fótfestuna sem þeir náðu innan kerfis 1984 til að valda frekara tjóni.
„Á þessu stigi höfum við hins vegar ekki upplýsingar um að árásaraðilarnir hafi skemmt aðrar vefsíður eða breytt gögnum annarra viðskiptavina. Viðbrögð við árásinni hófust mjög fljótt og vísbendingar eru um að þær mótaðgerðir hafi verulega takmarkað athafnafrelsi árásaraðilanna.“
