Vön því að vera búin undir ýmislegt

Á Haga á Barðaströnd búa hjónin María og Haraldur. Þau, eins og flestir í sveitinni, þurfa að gera ráð fyrir því að geta bjargað sér ef grunninnviðir bresta.

Flestir bæir í sveitinni eru með ljósavél í bílskúrnum sem má grípa til ef rafmagn fer. Á Haga er rafallinn tengdur við gamla bæinn. Það er ekki langt síðan hjónin þurftu síðast að grípa til þess að flytja sig yfir í gamla bæinn. „Við höfum oft þurft að gera það, brjótast í brjáluðu veðri hérna milli bæja,“ segir María.

Þau sjá til þess að nóg sé til af kertum, rafhlöðum og kveikjurum. Svo er nóg til af mat í tveimur frystikistum.

Almenningi er bent á að eiga nægar vistir í húsinu til að geta lifað á þeim í þrjá daga. Hjónin á Haga telja að þau gætu lifað á matnum í frystikistunni í þrjá mánuði hið minnsta, ef ekki ár.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.