Bandaríska geimferðastofnunin, NASA, skaut Voyager 1 á loft árið 1977. Á næsta ári eru því fimmtíu ár síðan leiðangur þessa fjarlægasta sendiherra jarðar í geimnum hófst. Það að Voyager sé kominn ljósdag í burtu frá jörðu þýðir að það tekur geimvísindamenn sólarhring að senda farinu skilaboð, þótt þau fari á hraða ljóssins. Það gengur fyrir plútóni og nýtist enn mjög vel við vísindarannsóknir. Árið 1979 og ’80 sendi farið myndir af Júpíter, Satúrnusi og fleiri reikistjörnum á leiðinni út úr sólkerfinu. Það safnar nú gögnum um geimryk og segulsvið sólkerfis okkar.
Geimfarið Voyager fyrsti, fjarlægasti manngerði hluturinn, er komið einn ljósdag frá jörðu, eða tæplega 30 milljarða kílómetra. Áfanganum var víða fagnað í dag, meira að segja á Húsavík.
Áfanganum fagnað á Húsavík
Leiðangur Voyager var á allra vörum á Landkönnunarhátíðinni á Húsavík sem var sett í tólfta sinn í dag klukkan 10:16:07, eða nákvæmlega þegar að geimfarið komst í ljósdagsfjarlægð frá jörðu.
Dagskrá hátíðarinnar er fjölbreytt en geimferð Voyager fyrsta er rauði þráðurinn. Erlendir hátíðargestir hafa mikinn áhuga á Íslandi í sögulegu samhengi geimferða. Tira Shubart vísindablaðamaður þekkir tæplega fimmtíu ára sögu Voyager vel.
„Voyager sendir okkur ekki eingöngu upplýsingar heldur er með upplýsingar meðferðis. Gullna plötu sem getur gefið upplýsingar um staðsetningu jarðar, um hver við erum og einnig eru bæði hljóð og tónlist á plötunni.“
Hljóðin sem um ræðir eru meðal annars hvalahljóð, barnsgrátur og fuglasöngur.
Hún segir að geimfarið safni ekki aðeins gögnum heldur sé það við öllu búið ef það rekst á vitsmunaverur á ferðalagi sínu.
„Það eru leiðbeiningar á plötunni fyrir hvern sem er, hvaða veru sem er, hvaða siðmenningu sem er, til þess að skilja hvernig á að spila plötuna.“
Töluverð bið er eftir því að Voyager komist ljósár í burtu. Það gerist eftir 18 þúsund ár og eftir önnur 18 þúsund ár kemst það loksins í nálægð við það sólkerfi sem er okkur næst.
„Slökkt verður á síðustu kerfum Voyager á næsta áratug en geimfarið getur ferðast, í rauninni, að eilífu. Eftir um 40.000 ár kemst það í næsta sólkerfi.“
