Yfir 130 höfundar í Hörpu um helgina: Hverjar eru jólabækurnar í ár?

Yfir 130 rithöfundar og bókaútgáfur kynna verk sín á Bókahátíð í Hörpu um helgina.Grænlensk saga, íslenskir skólakrakkar og ljóðræn tilvistarangist er meðal umfjöllunarefnis jólabókanna í ár. Höfundar og bókaunnendur mætast á Bókahátíð í Hörpu um helgina.

Flestir höfundanna eru íslenskir en sex gestahöfundar heimsækja hátíðina. Ein af þeim er Arnaq Johansen sem skrifar sögu sína og níu annarra grænlenskra kvenna af lykkjumálinu.

„Ég er sú fyrsta sem fjallað er um í bókinni. Þetta er saga mín þegar ég var 12 ára. Blómin sem teiknuð eru í bókinni og hafa ekki ber eru myndlíking fyrir þær sem áttu ekki börn. Og þau sem hafa ber standa fyrir þær sem eignuðust börn.“

Grænlensk saga, íslenskir skólakrakkar og ljóðræn tilvistarangist er meðal umfjöllunarefnis jólabókanna í ár. Höfundar og bókaunnendur mætast á Bókahátíð í Hörpu um helgina.

„Ég verð að skrifa bók um kennarann líka“

Fjölbreyttar barna- og ungmennabækur koma út fyrir þessi jól, meðal annars 10. bók Yrsu Þallar Gylfadóttir í bókaflokknum Bekkurinn minn, sem hefur slegið í gegn meðal íslenskra lesenda.

„Það eru komnar út 10 bækur af 16 þannig að ég verð að klára börnin og svo alltaf þegar ég fer að lesa upp úr bókunum þá spyrja börnin mig: Hvenær kemur út bók um kennarann þannig að ég verð að skrifa bók um kennarann líka þannig að það eru allavegana sex eða sjö bækur eftir.“

Yrkisefnið er tilvistarangist og gleði

Valdimar Tómasson, ljóðskáld, gaf út bókina Svanvængjuð þrá í vor þar sem yrkisefnið er tilvistarangist og gleði, sársauki og lífsþjáning.

„Við förum með nóg af því í kistuna,“ segir Valdimar.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.