Yfirvöld gefa út almannavarnabækling: „Verum viðbúin“

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra gefur í dag út bæklinginn Verum viðbúin, sem ætlað er að efla viðbúnað almennings og styrkja seiglu samfélagsins.

Bæklingurinn verður sendur rafrænt í gegnum Ísland.is en honum verður einnig dreift í prentaðri útgáfu á völdum stöðum um land allt frá miðvikudegi til sunnudags, með aðkomu björgunarsveita Landsbjargar, samhliða sölu Neyðarkallsins.

Greint var frá gerð bæklingsins í janúar á síðasta ári.

Náttúruhamfarir, rafmagnsleysi og samfélagslegar áskoranir

Í tilkynningu almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra segir að bæklingnum sé ætlað að veita almenningi upplýsingar um hvernig hann geti undirbúið sig fyrir aðstæður sem geta raskað daglegu lífi.

Þar eru nefnd sem dæmi náttúruhamfarir, veður, rafmagnsleysi, fjarskiptatruflanir og aðrar samfélagslegar áskoranir. Atburðir á borð við eldgos og jarðskjálfta á undanförnum árum hafi minnt á mikilvægi þess að einstaklingar og fjölskyldur séu undirbúin þegar óvæntar aðstæður skapast.

Jafnframt hafi aukin áhersla verið lögð á viðbúnað almennings víða um Evrópu og á Norðurlöndum.

Viðbúnaður ekki einungis verkefni stjórnvalda

„Viðbúnaður er ekki einungis verkefni stjórnvalda, heldur okkar allra. Þegar einstaklingar og fjölskyldur gera einfaldar ráðstafanir til að búa sig undir mögulegar truflanir eykst öryggi samfélagsins í heild,“ er haft eftir Runólfi Þórhallssyni, yfirlögregluþjóni almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, í tilkynningu.

Í bæklingnum er meðal annars fjallað um hvar hægt er að nálgast áreiðanlegar upplýsingar og hvaða búnaður getur verið gagnlegur á heimilinu. Þar er meðal annars bent á útvarp sem gengur fyrir rafhlöðum, hleðslubanka, vasaljós, lyf og aðrar nauðsynjar sem geta komið að góðum notum þegar á reynir, svipað og bent var á í átaki Rauða krossins í fyrra sem bar yfirskriftina Þrír dagar.

Fyrstu eintök verða afhent ráðherrum að loknum ríkisstjórnarfundi í dag. Hann er unninn í samstarfi sérfræðinga, ráðuneyta, stofnana og samstarfsaðila undir forystu almannavarnadeildar.


Discover more from UM LEGACY PRESS LTD

Subscribe to get the latest posts sent to your email.